Ekkja Andemariams vitnar gegn Macchiarini: „Annars getur þú dáið“

Ekkja Andemari­ams Beyene er vitni ákæru­valds­ins í Svíþjóð gegn ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini sem hefur verið ákærður fyrir að valda manni hennar lík­ams­tjóni. Hún segir að Macchiarini hafi þrýst á Andemariam að fara í plast­barka­að­gerð­ina og lofað honum 8 til 10 árum með börnum þeirra hjóna.

Ekkja Andemariams vitnar gegn Macchiarini: „Annars getur þú dáið“

Ekkja Erít­reu­manns­ins Andemariam Beyene, fyrsta plast­barka­þeg­ans í heim­inum, segir að ítalski skurð­lækn­ir­inn Paulo Macchiarini hafi logið því að eig­in­manni hennar að ígræðsla á plast­barka myndi lengja líf hans um 8-10 ár. Þetta sagði Macchiarini við Andemariam þrátt fyrir aðgerða­tæknin hefði ekki verið rann­sökuð eða prófuð á öðrum líf­verum áður en hann græddi plast­bark­ann í Andemariam með hjálp stofn­frumna sem plast­bark­inn var bað­aður úr til að aðlag­ast lík­ama hans. Þetta segir ekkjan, Mehrawit Tefaslase, í skýrslu­töku hjá ákæru­vald­inu í Svíþjóð sem er hluti af rann­sókn­ar­gögn­unum í plast­barka­mál­inu. 

Macchiarini er ákærður fyrir þrjár lík­ams­árásir í mál­inu gegn Andemariam og tveimur öðrum sjúk­lingum sem hann græddi í plast­barka í Svíþjóð. Allir sjúk­ling­arnir þrír dóu eftir plst­barka­ígræðsl­urnar og hefðu þeir hugs­an­lega getað lifað lengra lífi og kvalist minna án aðgerð­anna þrátt fyrir að þau hafi glímt við sjúk­dóma.

Macchiarini neitar sök í mál­inu.

Öruggt að barkinn myndi virka í 8 til 10 ár

Macchiarini sagði við Andemariam að ef hann vildi sjá börn sín vaxa úr grasi ætti hann að fara í aðgerð­ina. „Ég segi frá því sem mað­ur­inn minn sagði við mig og hann tal­aði við þennan lækni [Macchiarini] um aðgerð­ina. Hann sagði við hann að hann hefði ekki notað þessa aðgerða­tækni á mann­eskjum áður og spurði af hverju hann vildi nota hana á sér […] en þessi læknir sagði að það væri öruggt að plast­bark­inn myndi virka í átt til tíu ár og hann sagði líka við mann­inn minn að það væri séns á því að hann gæti fengið að sjá fal­legu börnin sín vaxa úr grasi og það var þess vegna sem mað­ur­inn sagði ok.“

Mehrawit og Andemariam voru búsett á Íslandi þar sem hann lagði stund á nám í jarð­fræði. Hann var sendur frá Íslandi til Sví­þjóðar sum­arið 2011 eftir að krabba­mein sem hann var með í hálsi hafði tekið sig upp aftur og læknir hans hér á landi, Tómas Guð­bjarts­son, vidli athuga hvaða með­ferð­ar­úr­ræði væru fyrir hendi í Svíþjóð

Sex mán­uðum síðarÁ mál­þingi í Háskóla Íslands var aðgerð­inni á Andemariam lýst sem sögu­legu afreki. Þetta var sex mán­uðum eftir að Andemariam hafði gert sér grein fyrir því að aðgerðin hafði ekki virkað segir ekkja hans.

Vitnisburður Mehrawit gegn Macchiarini

Macchiarini er ákærður fyrir þrjár lík­ams­árásir í mál­inu gegn Andemariam og tveimur öðrum sjúk­lingum sem hann græddi í plast­barka í Svíþjóð. Allir sjúk­ling­arnir þrír dóu eftir plast­barka­ígræðsl­urnar og hefðu þeir hugs­an­lega getað lifað lengra lífi og kvalist minna án aðgerð­anna þrátt fyrir að þau hafi glímt við sjúk­dóma. 

Vitn­is­burður Mehrawit á að styrkja það ákæru­efni að Andemariam hafi haft efa­semdir um að fara í aðgerð­ina en að Macchiarini hefði sann­fært hann um að fara í aðgerð­ina þrátt fyrir þetta, sam­kvæmt því sem segir í einum lið ákærunnar. Þá á vitn­is­burður Mehrawit einnig að und­ir­byggja það mat ákæru­valds­ins að heilsa Andemari­ams hafi hríð­versnað eftir aðgerð­ina. 

„Við höfðum von í brjósti en þessi von minnk­aði og að end­ingu drukkn­aði hún alveg“

Á öðrum stað í yfir­heyrsl­unni er Mehrawit áfram beðin um að útskýra hvernig Macchiarini tal­aði Andemariam til. „Þetta er eins og ég hef sagt. Þeir sögðu við hann að ef hann færi í þessa aðgerð þá væri það besta nið­ur­staðan fyrir hann. Hann sagð­ist efast um þetta og sagði nei en þá sagði hann [Macchiarini] að það væri öruggt að þetta myndi virka og ég sagði að mað­ur­inn minn hefði sagt við lækn­inn að hann vildi ekki vera til­rauna­dýr fyrir eitt­hvað sem ekki hefði verið prófað áður á mann­eskjum. En lækn­ir­inn sagði við hann að þetta væri öruggt. Lækn­ir­inn sagði við hann að þetta væri öruggt og að ef þú vilt sjá börnin þína vaxa úr grasi þá áttu mögu­leika á því eftir þessa aðgerð ann­ars getur þú dáið.“

Eftir sex mánuði hafði Andemariam gefið upp vonina

Í skýrslu­tök­unni hjá sænska ákæru­vald­inu lýsir Mehrawit því hvernig Andemariam hafði eig­in­lega gefið upp alla von um að ná bata um sex mán­uðum eftir aðgerð­ina. Í lok árs árið 2011 og byrjun árs 2012.

Þetta var ein­ungis rétt eftir að grein um aðgerð­ina á Andemariam hafði verið birt í lækna­tíma­rit­inu Lancet þar sem önd­un­ar­vegur Andemariam með plast­bark­anum var sagður vera „næstum því eðli­legur“ var birt í. Greinin var birt í lok nóv­em­ber 2011. 

Mehrawit segir að tím­inn eftir aðgerð­ina hafi verið mjög erf­iður fyrir Andemariam. „Já, þetta var mjög erf­iður, mjög erf­iður, tími fyrir hann. Lækn­ir­inn sagði við hann að það væri öruggt að hann fengi átt til tíu ár en það varð ekki svo heldur var þetta miklu styttri tími. Og sá tími sem hann fékk var heldur ekki venju­legt líf heldur langt frá venju­legu lífi. Hann leið kvalir og hrækti blóði og hann þurfti að vera í stöð­ugum sam­skiptum við heil­brigð­is­kerfið í Svíþjóð til að laga eitt­hvað í háls­inum á honum. Þannig að þetta var mjög erf­iður tími fyrir hann sem mann­eskju. Hann greiddi það dýru verði og hann greiddi það dýru verði eftir aðgerð­ina. Hann greiddi fyrir þetta með lífi sínu og þetta var erfitt fyrir okkur öll og þetta var erfitt fyrir mig en mest af öllu var þetta erfitt fyrir hann.“

Mehrawit segir að þau hafi beðið eftir því að Andemariam myndi byrja að líða betur en að um sex mán­uðum eftir aðgerð­ina höfðu þau misst von­ina. „Við biðum eftir því að honum myndi byrja að líða betur en eftir um 6 mán­uði, cirka 6 mán­uði, vissi mað­ur­inn minn að allt væri orðið dimmt. Hann byrj­aði að sjá eftir því að hafa farið í þessa stóru aðgerð vegna þess að við sáum að þetta gekk mjög illa. […] Við höfðum von í brjósti en þessi von minnk­aði og að end­ingu drukkn­aði hún alveg,“ segir Behrawit í skýrslu­tök­unni.

Þessi vitn­is­burður Mehrawit er merki­legur meðal ann­ars fyrir þær sakir að einu ári eftir aðgerð­ina, sex mán­uðum eftir að Andemariam hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að aðgerðin hefði verið mis­tök, var haldið mál­þing í Háskóla Íslands um aðgerð­ina og henni líst sem árang­urs­ríkri og stóru skrefi í sögu lækn­is­fræð­innar. Margir erlendir og inn­lendir fjöl­miðlar fjöll­uðu um ráð­stefn­una. 

Á þessum tíma lá hins vegar fyrir að plast­barki Andemari­ams virk­aði ekki sem skyldi og myndi aldrei gera það. 

Andemariam lést í febr­úar 2014, rúm­lega tveimur og hálfu ári eftir aðgerð­ina. 

Eftir að Andemariam lést flutti Mehrawit frá Íslandi til Sví­þjóðar ásamt börnum þeirra. Hún býr í dag í smábæ í Dalarna í Mið-Svíþjóð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

Uppljóstrarar: „Plastbarkamálið er ennþá opið sár“
FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.
Sjúkratryggingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plastbarkamálinu
GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár