Trump segir úkraínska „leiðtoga“ ekki sýna neitt þakklæti

Áfram er tek­ist á um 28 punkta frið­ar­á­ætlun Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta. For­set­inn segir úkra­ínska leið­toga ekki hafa sýnt Banda­ríkj­unum neitt þakk­læti.

Trump segir úkraínska „leiðtoga“ ekki sýna neitt þakklæti

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sakar Úkraínu enn á ný um að sýna ekki „þakk­læti“ fyrir stuðn­ing banda­rískra yfir­valda við varnir lands­ins gegn inn­rás Rússa, á meðan helstu full­trúar Banda­ríkj­anna og Úkraínu hitt­ust í Genf til að ræða til­lögu um að stöðva stríðið.

„ÚKRAÍNSKIR „LEIÐTOGAR“ HAFA SÝNT OKKUR NÚLL ÞAKKLÆTI FYRIR FRAMLAG OKKAR,“ skrif­aði Trump á Truth Social, þar sem hann gagn­rýndi einnig Evr­ópu­ríki fyrir að gera ekki nóg til að binda enda á stríðið, en lét þó hjá líða að for­dæma Moskvu beint.

Ummælin komu fram á sama tíma og Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, fund­aði í vetr­ar­kaldri Genf á sunnu­dag með æðstu emb­ætt­is­mönnum Úkraínu um umdeilda 28 punkta frið­ar­til­lögu for­set­ans til að binda endi á nær fjög­urra ára átök.

Úkra­ínska sendi­nefndin, undir for­ystu Andriy Yermak, átti einnig fund með hátt­settum emb­ætt­is­mönnum Bret­lands, Frakk­lands og Þýska­lands í borg­inni, þar sem Evr­ópu­ríki reyna að tryggja sér aðkomu að við­ræð­unum.

…
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Fyrir hvað ætti Úkranía að þakka þessum sýndarmennskuforseta fyrir?
    Þessar tillögur eru eins og hver önnur uppgjöf og fyllsta ástæða er til að ætla að Pútin færi sig upp á skaftið og vilji meira síðar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár