Trúnaðarmenn Eflingar: Sólveig Anna fer með fleipur um að samkomulag hafi náðst

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, fund­aði ekki sjálf með trún­að­ar­mönnum starfs­manna á skrif­stofu Eflingar heldur fól lög­manni stjórnar stétt­ar­fé­lags­ins að gera það. Trún­að­ar­menn mót­mæla því að um sam­ráð við þá hafi verið að ræða við fram­kvæmd hóp­upp­sagnar starfs­manna Eflingar.

<span>Trúnaðarmenn Eflingar:</span>  Sólveig Anna fer með fleipur um að samkomulag hafi náðst
Segja upp­sagn­irnar ekki halda vatni Trún­að­ar­menn á skrif­stofu Eflingar, Gabríel Benjamin og Alma Pálma­dóttir, segja að þær ástæður sem settar voru fram fyrir hóp­upp­sögn starfs­manna stétt­ar­fé­lags­ins byggi ekki á rökum.

Full­yrð­ingar Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur um að náðst hafa sam­komu­lag um hóp­upp­sögn allra starfs­manna skrif­stofu Eflingar stétt­ar­fé­lags eru rangar að því er trún­að­ar­menn á vinnu­staðnum segja. Sólveig Anna sjálf sat ekki fundi með trún­að­ar­mönnum heldur aðeins lög­maður stjórnar Eflingar.

Í til­kynn­ingu sem trún­að­ar­menn á skrif­stofu Eflingar hafa sent frá sér kemur fram að þeir hafi 11. og 12. apríl fundað með lög­manni stjórnar Eflingar í því skyni að reyna að forð­ast hóp­upp­sögn eða fækka þeim starfs­mönnum sem fyrir upp­sögnum yrðu, en til­kynnt hafði verið áður að meiri­hluti stjórnar Eflingar hyggð­ist segja upp öllum starfs­mönnum skrif­stof­unnar.

„Full­yrð­ingar Sól­veigar Önnu að það hafi náðst sam­komu­lag um fram­kvæmd hóp­upp­sagnar er með öllu röng, sem hún hefði vitað hefði hún setið fund­ina“
Trún­að­ar­menn Eflingar

Á þeim fundum hafi trún­að­ar­menn, Alma Pálma­dóttir trún­að­ar­maður Eflingar, og Gabríel Benjamin, trún­að­ar­maður VR, að eigin sögn mætt með opnum huga til að reyna að kom­ast hjá hóp­upp­sögn­unum eða í það minnsta milda þær, enda krefj­ist yfir­lýst mark­mið stjórn­ar­innar þeirra ekki.

„Við getum ekki sagt að um sam­ráð hafi verið um að ræða í skiln­ingi laga um hóp­upp­sagnir, engin vilji var til breyt­inga eða mild­unar á hóp­upp­sögn heldur ein­hliða ákvörðun sem er röng, óskyn­sam­leg og með öllu ónauð­syn­leg. Gefnar voru upp ástæður sem fólust í breyt­ingum á ráðn­ing­ar­kjörum og til að upp­fylla skil­yrði varð­andi jafnauna­vottun. Þessar ástæður eru ekki byggðar á rökum og halda engu vatni.

Full­yrð­ingar Sól­veigar Önnu að það hafi náðst sam­komu­lag um fram­kvæmd hóp­upp­sagnar er með öllu röng, sem hún hefði vitað hefði hún setið fund­ina.“

Þegar trún­að­ar­mönnum hafi orðið ljóst að hvorki yrði hægt að koma í veg fyrir upp­sagn­irnar né að milda þær hafi orðið að sam­komu­lagi milli þeirra og lög­manns stjórn­ar­innar að segja fram bókun þar sem trún­að­ar­menn and­mæltu hóp­upp­sögn­inni. Þau hafi hins vegar fall­ist á að gera sam­komu­lag um fjögur atriði er lúti að upp­sögn­unum. Bókunin hafi verið trún­að­ar­mál en með því að Sólveig Anna hafi rofið þann trúnað telji trún­að­ar­menn sig ekki lengur bundin þeim trún­aði.

Uppfært:

Sólveig Anna hefur á Facebook-síðu sinni birt færslu þar sem hún and­mælir yfir­lýs­ingu trún­að­ar­manna Eflingar. Segir hún þar að rangt sé að haft eftir trún­að­ar­mönnum að ekk­ert sam­ráð hafi verið haft við þá og að sam­komu­lag hafi ekki verið gert og vísar í bókun þá sem trún­að­ar­menn og lög­fræð­ingur stjórnar Eflingar und­ir­rit­uðu. 

„Eins og öll geta séð hér þá fór sam­ráð fram með lög­mætum hætti og kom­ist var að und­ir­rit­uðu sam­komu­lagi um ákveðin atriði skipu­lags­breyt­inga. Sam­komu­lag náð­ist vissu­lega ekki um að hætta við breyt­ing­arnar og aðilar voru ekki sam­mála um ástæður og for­sendur, en sam­komu­lag náð­ist svo sann­ar­lega um aukin rétt­indi starfs­fólks á upp­sagn­ar­fresti eins og hvert manns­barn getur séð af lestri bók­un­ar­innar. Þessi bókun var aldrei neitt trún­að­ar­mál, og er það ekki frekar en annað í sam­bandi við þetta mál sem við­kom­andi og óvið­kom­andi aðilar hafa gasprað um stans­laust í fjöl­miðlum síð­ustu sól­ar­hringa,“ skrifar Sólveig Anna. 

Ljóst er að trún­að­ar­menn­irnir og Sólveig Anna leggja ekki sama skiln­ing í umrædda bókun, trún­að­ar­menn segja ekki hafa náðst sam­komu­lag þó samið hafi verið um fjögur atriði sér­stak­lega, en Sólveig Anna segir að sam­komu­lag hafi náðst og vísar þar til umræddra fjög­urra atriða þó ekki hafi náðst sam­komu­lag um að hætta við upp­sagn­irnar. 

Þá greinir trún­að­ar­menn og Sólveigu Önnu á um hvort umrædd bókun hafi verið trún­að­ar­mál. Í yfir­lýs­ingu trún­að­ar­manna segir að sam­kvæmt lög­manni stjórnar Eflingar sé bók­unin „ekki lengur trún­að­ar­mál“ á meðan að Sólveig Anna segir að „þessi bókun var aldrei neitt trún­að­ar­mál“. Umrædda bókun má sjá hér að neðan. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Siggi Rey skrifaði
    Hjá þessum úrillu uppsögðu aðilum er eitt helsta atriðið að uppsagnir hafi borist um miðja nótt. Með illu skal út reka!
    -1
  • Guðmundur Thoroddsen skrifaði
    Maður hefur það á tilfinninguna að þau geti rifist við ljósastaur.
    Þetta gagg í þeim er jafn árangursríkt. Þau halda bæði að þau stjórni einhverju innan félagsins, en svo er ekki.
    1
  • Sigrún Jónsdóttir skrifaði
    Hver er svo samningsstaða Eflingar fyrir hönd félagsmanna sinna sem fa send uppsagnarbréf i tölvupósti um miðja nótt, ástæður uppsagnar skipulagsbreytingar hvernig ætlar Efling að standa með félagsmönnum sinum sem lenda i þessum aðstæðum?
    Finnst formanni verkalyðsfelags alveg i lagi ef félagsmenn þeirra eru úthrópaðir a samfélagsmiðlum?
    0
    • Siggi Rey skrifaði
      Veistu um einhvern aðila í þjóðfélaginu sem hefur orðið fyrir öðru eins skítkasti og Sólveig Anna? Reynt ítrekað mannorðsmorð? Og þar hafa fjölmiðlar ekki látið sitt eftir liggja! Og vittu til, af öllu þessu skítkasti ykkar, fullvissið þið almenning um að hreisunar var virkilega þörf. Húrra fyrir Sólveigu Önnu.
      -1
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Hvaða vitleisa er þetta að hafa Formen stéttafélaga stjórn og annaÐ TILDUR ,NÓ AÐ HAFA HÁLAUNA STARSFÓLK Á SKRIFSTOFUNNI OG ALLT Í GÓÐU.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Baráttan um Eflingu

Formaður VR lagðist gegn ályktun sem fordæmdi Eflingar-uppsagnir
FréttirBaráttan um Eflingu

Formaður VR lagð­ist gegn ályktun sem for­dæmdi Eflingar-upp­sagnir

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, lagð­ist gegn því að trún­að­ar­ráð félags­ins sendi frá sér ályktun, þar sem hóp­upp­sagnir Eflingar voru for­dæmdar. Fyrr­ver­andi for­maður VR seg­ist hissa á því að for­maður VR geti opin­ber­lega stutt for­manns­fram­bjóð­anda í Eflingu, en ekki gagn­rýnt það þegar hún segi upp félags­mönnum hans.
Hvað gerðist á skrifstofu Eflingar?
FréttirBaráttan um Eflingu

Hvað gerð­ist á skrif­stofu Eflingar?

Starfs­menn á skrif­stofu Eflingar lýsa van­líðan og kvíða yfir mögu­leik­anum á að Sólveig Anna Jóns­dóttir verði aftur kjörin for­maður. Starfs­á­nægjukann­anir á skrif­stof­unni sýna hins vegar almenna ánægju starfs­fólk allt síð­asta ár. Starfs­manna­fundur í októ­ber varð hins vegar til þess að 90 pró­sent starfs­manna fann fyrir van­líðan. Stundin rekur sög­una um átökin innan Eflingar, sem virð­ast aðeins að litlu leyti hverf­ast um for­mann­inn fyrr­ver­andi.
Sólveig Anna er komin og krefst virðingar
ViðtalBaráttan um Eflingu

Sólveig Anna er komin og krefst virð­ingar

„Ég fór inn með þá hug­mynd – sem eftir á að hyggja var mjög barna­leg – að ég gæti verið bara næs og kammó og vin­gjarn­leg, til í að ræða málin og spjalla,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir sem reynir nú að vinna aftur for­manns­stól­inn í Eflingu, stærsta stétt­ar­fé­lagi verka- og lág­launa­fólks á Íslandi um inn­komu sína í verka­lýðs­bar­áttu. Fari svo að hún vinni ætlar hún sér að fá þá virð­ingu sem hún telur emb­ættið eiga skilið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár