716. spurningaþraut: Hvaða eyjaklasi geymir Honshu?

716. spurningaþraut: Hvaða eyjaklasi geymir Honshu?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá þá konu fædda í Kyív sem náð hefur mestum ver­ald­legum frama í sög­unni. Hvað hét hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað fékkst Cary Grant við í líf­inu?

2.  En hinn svo­nefndi Lucky Luciano?

3.  Honshu heitir stærsta eyjan í miklum eyja­klasa hér í heimi. Hvaða ríki nær yfir eyja­klasa þann?

4.  Þórunn Jarla Valdi­mars­dóttir gaf á síð­asta ári út frá­sögn um þá atburði sem leiddu til síð­ustu aftöku á Íslandi. Þá höfðu tveir menn verið myrtir. Annar þeirra var hálf­gerður stór­bokki, átti pen­ing og stund­aði lækn­ingar. Hvað hét hann? — Og þið megið fá ykkur lár­við­ar­stig ef þið munið nafnið á hinum sem líka var drep­inn.

5.  Ákveðið fyr­ir­bæri hefur gengið undir ýmsum nöfnum gegnum tíð­ina. Í Toskana fyrr á tíð var það kennt við engla, en sumir arab­ískir hópar kenna það hins vegar við snáka. Síðustu ára­tugi hefur það á Vest­ur­löndum verið kennt við trú­boða. Hvaða fyr­ir­bæri er þetta?

6.  Talandi um trú­boða, hver stofn­aði hreyf­ingu Jesúíta sem mjög hafa stundað trú­boð öldum saman?

7.  Hver var borg­ar­stjóri í Reykja­vík alda­móta­árið 2000?

8.  Hver er nú for­seti Frakk­lands?

9.  Lana del Rey heitir kona ein. Upp­haf­lega hét hún þó Elizabeth Woolridge Grant. Hvað ætli hún fáist við í líf­inu?

10.  Þegar Sov­ét­ríkin hrundu urðu til mörg ný ríki. Þar af fimm í Mið-Asíu. Hvað heita þau? Þið þurfið að hafa fjögur rétt til að fá stig.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan sem hér hefur fengið fálka­orðu?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kvik­mynda­leik­ari.

2.  Mafíu­for­ingi, glæpa­maður.

3.  Japan.

4.  Natan Ket­ils­son hét sá fræg­ari, en sá sem tryggir ykkur lár­við­ar­stigið hét Pétur Jónsson. Pétur dugar, enda var föð­ur­nafn hans sjaldan notað.

5.  Kyn­lífs­stell­ing.

6.  Ingatius Loyola.

7.  Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir.

8.  Macron.

9.  Hún er söng­kona.

10.  Kasakstan — Úsbekistan — Tur­k­menistan — Tajikistan — Kyrgyzstan.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Golda Meir for­sæt­is­ráð­herra Ísraels.

Á neðri mynd­inni er Gerður Kristný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár