SÁÁ fordæmir hegðun fráfarandi formanns

Fram­kvæmda­stjórn SÁÁ seg­ist standa með þolendum og boðar umbætur á starf­sem­inni.

SÁÁ fordæmir hegðun fráfarandi formanns

Fram­kvæmda­stjórn SÁÁ sendi rétt í þessu frá sér yfir­lýs­ingu þar sem fram kemur að hegðun fyrr­ver­andi for­manns sam­tak­anna sé for­dæmd og að framundan sé gagn­ger skoðun og nauð­syn­legar umbætur á öllu starfi sam­tak­anna. Traust og trún­aður skjól­stæð­inga, starfs­manna og lands­manna allra sé lyk­ill­inn að til­veru SÁÁ. „Undir því trausti viljum við rísa. Við munum ráð­ast í gagn­gera skoðun og nauð­syn­legar umbætur á öllu okkar starfi og kapp­kosta að tryggja öryggi skjól­stæð­inga okkar sem margir eru í við­kvæmri stöðu.“

„Við munum ráð­ast í gagn­gera skoðun og nauð­syn­legar umbætur á öllu okkar starfi“
Fram­kvæmda­stjórn SÁÁ

Stundin greindi frá því í gær að Einar Her­manns­son hefði keypt vændi af konu sem glímdi við vímu­efna­vanda á árunum 2016 til 2018, þegar hann sat í fram­kvæmda­stjórn SÁÁ. Þegar hann fór í fram­boð til for­manns sum­arið 2020 ætl­aði konan að leggja fram kæru á hendur honum vegna vændis­kaupa, sem er brot á hegn­ing­ar­lögum, en guggn­aði á því. Hún ótt­að­ist að falla vegna álags­ins sem fylgdi því að leggja fram kæru. 

Var skjólstæðingur SÁÁ

„Ég var hræði­lega veik,“ sagði konan um stöðu sína þegar Einar keypti af henni vændi, en hún hafði glímt við ill­vígan sjúk­dóm og leiðst út í neyslu fíkni­efna, sem hún fjár­magn­aði með vændi. Konan var skjól­stæð­ingur SÁÁ og óaði við til­hugs­un­inni um að vændis­kaup­andi gæti orðið æðsti stjórn­andi sam­tak­anna. Þegar fjallað var um kröfu Sjúkra­trygg­inga Íslands á hendur SÁÁ hafði konan sam­band við Stundina til þess að segja sögu sína, því henni varð óglatt að sjá mann­inn koma fram í fjöl­miðlum fyrir hönd sam­tak­anna.  

Á sama tíma hafði heil­brigð­is­starfs­maður sam­band við starfs­mann Embættis land­læknis til að spyrj­ast fyrir vegna þess að skjól­stæð­ingur hans hafði trúað honum fyrir vændis­kaupum Einars. Þegar konan hætti við að leggja fram kæru á hendur Einari ákvað heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn að fylgja mál­inu ekki eftir gagn­vart Land­lækn­is­emb­ætt­inu með form­legri til­kynn­ingu.

Brást við fyrirhugaðri umfjöllun 

Einn stjórn­ar­með­limur SÁÁ var sömu­leiðis upp­lýstur um vændis­kaupin á svip­uðum tíma en aðhafð­ist ekki. Það var ekki fyrr en Stundin hafði spurst fyrir um málið í síð­ustu viku sem málið barst fram­kvæmda­stjórn SÁÁ til eyrna og það var tekið fyrir á fundi sem leiddi til afsagnar for­manns­ins.

„Ég iðr­ast að hafa farið þessa leið og að hafa valdið fjöl­skyldu minni sárs­auka“
Einar Her­manns­son
Frá­far­andi for­maður SÁÁ

Einar sendi af því til­efni frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann kvaðst hafa svarað aug­lýs­ingu þar sem kyn­líf var boðið gegn greiðslu, en gögn sýna hann hafa sam­band við kon­una að fyrra bragði, semja við hana um vændis­kaup, boða komu sína á næstu tíu mín­útum og þakka fyrir sam­skiptin um einum og hálfum tíma síðar. Í yfir­lýs­ing­unni sagði hann sagði umfjöllun um málið kasta rýrð á sam­tökin ogsagð­ist iðr­ast þess að hafa valdið fjöl­skyldu sinni sárs­auka með fram­ferði sínu. „Ég iðr­ast að hafa farið þessa leið og að hafa valdið fjöl­skyldu minni sárs­auka vegna hegð­unar minnar. Bið ég alla þá sem málið varðar afsök­unar á fram­ferði mínu.“

Boða til aðalfundar

Vara­for­maður SÁÁ er Sigurður Frið­riks­son, en greint hefur verið frá því að hann hafi ekki tekið við störfum for­manns vegna veik­inda af völdum Covid-19 veirunnar.

Fram­kvæmda­stjórn SÁÁ mun boða til fundar í aðal­stjórn SÁÁ föstu­dag­inn 28. jan­úar næst­kom­andi kl. 17.15 til að kjósa nýjan for­mann sam­tak­anna.

„Umfram allt stöndum við með þolendum“
Fram­kvæmda­stjórn SÁÁ

 „Umfram allt stöndum við með þolendum,“ segir í yfir­lýs­ingu frá fram­kvæmda­stjórn SÁÁ. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Var það ekki þessi gaur og hanns vinir sem settu mest út á Þórarinn Tyrfingsson ? Nú verður gerður FEITUR starfslokasamningur.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    En verður einstaklingnum sem vissi af svívirðunni í stjórnini boðið að bæta ráðsitt líkt og ferju Skipstjóranum í Eyjum?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár