SÁÁ sendi gríðarlegt magn af „tilhæfulausum reikningum“

Sjúkra­tryggingar Íslands segja að ekkert í svörum SÁÁ breyti þeirri niður­stöðu að samtökin hafi sent gríðarlegt magn af tilhæfu­lausum reikningum. SÍ hafi lengi verið í „algeru myrkri“ um tilurð þeirra og eðli og þeir því verið greiddir í góðri trú. Þá sé meðferð SÁÁ á sjúkra­skrám „augljós brot á lögum“.

Sjúkratryggingar segja að ekkert í svörum SÁÁ breyti niðurstöðu eftirlits SÍ
Sjúkra­trygg­ingar segja að ekk­ert í svörum SÁÁ breyti nið­ur­stöðu eft­ir­lits SÍ Mynd tekin af heima­síðu sam­tak­anna

Sjúkra­tryggingar Íslands segja SÁÁ hafa sent stofnuninni gríðarlegt magn tilhæfu­lausra reikninga, sem sé grunnurinn að 175 milljóna króna kröfu stofnunarinnar á hendur samtökunum. Ekkert hafi komið fram í svörum SÁÁ við rannsókn Sjúkra­trygginga (SÍ) sem breyti þeirri niður­stöðu. Stofnunin hafi greitt reikninga SÁÁ í góðri trú en hafi verið í myrkri um starfsemina. 

Þetta er meðal þess sem kemur fram í tíu blaðsíðna bréfi sem stofnunin sendi SÁÁ með niður­stöðum úr rannsókn sinni. Stundin fékk bréfið afhent hjá Sjúkra­tryggingum síðdegis. Í bréfinu er málið reifað, niður­staðan kynnt og svör SÁÁ vegna athugasemda stofnunarinnar birt. Ari Matthíasson, deildar­stjóri eftirlits­deildar SÍ, segir í skriflegu svari til Stundarinnar að æðstu stjórn­endur Sjúkra­trygginga Íslands hafi komið að málinu.  

Niður­staðan er sú að Sjúkra­tryggingar Íslands fara fram á að SÁÁ greiði stofnuninni til baka rétt tæpar 175 milljónir króna „vegna tilhæfu­lausra reikninga og vanefnda á þjónustu og þjónustu­magni“.

Í bréfinu segir að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Eyþór Dagur skrifaði
    „tilhæfulausrar lokunar fyrir staðþjónustu á tímabilinu október til desember 2020“. Bíð spenntur eftir því að ríkissjóður hjóli í leikhúsin, ríkisstarfsmenn sem unnu heima og heilbrigðisstarfsmenn sem mættu ekki í vinnuna frá Október til Des 2020. Spennó! Glæpamenn allt með tölu. Ætli foreldrar eigi ekki eftir að fá heimsókn frá barnavernd, sem sendu ekki börnin í skólann?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rannsókn á SÁÁ

Fréttir

Stjórn­endur SÁÁ bera ábyrgð á þjónustunni en ekki starfs­fólkið segir forstjóri SÍ

María Heimis­dóttir, forstjóri Sjúkra­trygginga segir að niður­staða í máli SÁÁ sé fengin eftir ítarlega skoðun og SÍ hafi verið skylt að tilkynna málið til héraðs­saksóknara. Ábyrgð á þjónustunni sé alfarið stjórn­enda SÁÁ en ekki einstakra starfs­manna. Hún segir afar ómaklegt að Ari Matthíasson, starfs­maður Sjúkra­trygginga hafi verið dreginn inn í umræðuna og sakaður um ómálefnaleg sjónarmið.

9 mín. lestur

Fréttir

Segja yfir­lýsinguna ekki í nafni alls starfs­fólks SÁÁ

Yfir­lýsing frá starfs­fólki SÁÁ var ekki borin undir allt starfs­fólk samtak­anna áður en hún var send til fjölmiðla í gær, samkvæmt heimildum Stundarinnar. „Hún var skrifuð fyrir okkar hönd án okkar vitundar,“ segir starfs­maður sem Stundin ræddi við. Fleira starfs­fólk sem rætt var við tók í sama streng en aðrir sögðust treysta stjórn SÁÁ til að tala fyrir hönd starfs­fólks enda sé það gert í góðri trú.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár