Tíu metra langt sæskrímsli finnst inni í miðju Englandi

Tíu metra langt sæskrímsli finnst inni í miðju Englandi
Maður og hvaleðla

Inni í miðju Englandi er Rutland-sýsla, spöl­korn austan við borg­ina Leicester. Þetta er ein allra smæsta sýsla Bret­lands, svo smá að þar er ekk­ert þorp fjöl­menn­ara en Oakham, þar sem búa tíu þús­und manns.

Rauði blett­ur­inn sýnir Rutland —langt frá sjó.

Árið 1975 hófust fram­kvæmdir við að virkja tvær ár sem falla um Rutland og búa til uppi­stöðu­lón til að sjá nágranna­sveit­unum fyrir nægu og jöfnu vatni.

Uppi­stöðu­lónið kall­ast nú Rutland Water og er um tíu fer­kíló­metrar að flat­ar­máli.

Fyrir rétt tæpu ári síðan eða í febr­úar 2021 var verk­stjór­inn Joe Davis að ann­ast fram­kvæmdir við að hleypa vatni af hluta eyjar í lón­inu, en slíkt mun vera gert reglu­lega.

Þá þótt­ist hann sjá nokkrar leir­pípur mara í vatns­borð­inu.

„Ein­hverjar gamlar pípu­lagnir,“ hugs­aði hann með sér. Undir vatns­borði Rutland Water eru víða hús og götur sem fóru undir vatnið 1975. 

En svo fannst Davis eitt­hvað aðeins of „líf­rænt“ við þessar „pípur“. Hann fór þess vegna og vakti athygli yfir­manns síns, Paul Trevors, á þessu. Væri ekki ástæða til að kanna hvað þetta væri?

Hvaleðlum svip­aði tölu­vert til höfr­unga í útlitien voru alveg óskyldar þeim.

Og nú á dög­unum voru nið­ur­stöður kynntar. Eftir að forn­leifa­fræð­ingar hafa grafið var­lega kringum „leir­píp­urnar“ sem Davis taldi sig sjá, þá er nú komið í ljós að þarna liggur stein­gerv­ingur tíu metra langrar hvaleðlu, sem kölluð er.

Á lat­ínu kall­ast dýrin ichthyosaurus og svip­aði í helst til þeirra hug­mynda sem menn gerðu sér um sæskrímsli fyrr á tímum. 

Og dýrið sem fannst í Rutland var í hópi þeirra allra stærstu sem menn hafa rek­ist á, þótt þess séu reyndar dæmi að fund­ist hafi bein hvaleðlu sem náð hefur 20 metra lengd.

Það merki­lega er að leifar hvaleðl­unnar er nú að finna í nærri 70 kíló­metra fjar­lægð frá sjónum, þar sem hún bjó. Svæðið umhverfis Rutland hefur verið á kafi í sjó þegar þessi til­tekna hvaleðla dó af ein­hverjum óþekktum ástæðum og hræ hennar huld­ist fljótt jurta­leifum og gruggi á sjáv­ar­botn­inum þáver­andi, svo beinin stein­gerð­ust á end­anum.

Stærstu hvaleðl­urnar voru ógn­væn­leg rán­dýr

Vís­inda­menn­irnir sem þeir Davis og Trevor köll­uðu á stað­inn hafa nú ald­urs­greint leif­arnar og þær reynd­ust 180 milljón ára gamlar.

Þá var risa­heims­álfa, sem við köllum nú Pangaea, að byrja að brotna upp. Nyrðri hlut­inn (Laurasia) var far­inn að fjar­lægj­ast þann syðri (Gondwanaland). Um leið var Norður-Atl­ants­hafið farið að opn­ast milli þeirra hluta Laurasiu sem við nefnum nú ann­ars vegar Norður-Ameríku og hins vegar Evrópu/Asíu.

Og á löngum tíma­bilum — stundum millj­ónum ára í senn — hefur svæðið, þar sem nú er Bretland, verið meirog minna undir sjó í þeim átökum öllum.

(Ísland var alls ekki orðið til, svo það sé nú sagt.)

Íbúar í Rutland eru hinir hróð­ug­ustu yfir fundi hvaleðl­unnar og von­ast til að utan um hræ hennar verði byggt mynd­ar­legt safn, svo sem flestir fái að njóta þess að virða það fyrir sér.

Jörðin fyrir 180 millj­ónum áraRauði blett­ur­inn er þar sem Bretland er nú, stundum neð­an­sjávar, stundum ekki.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
6
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár