Hamingjan er mikilvægasta hráefnið

Hvað er ham­ingjan fyrir þér?

Skúli S. Ólafsson

prestur í Neskirkju

Ham­ingju­samt fólk er stundum sagt vera „hátt uppi“ sem rímar við orð Bibl­í­unnar um himna­ríki. Sjálfur segir Jesús himna­sæl­una bæði vera „innra með okkur“ og „mitt á meðal okkar“. Ég tengi við þau orð. Á mínum sæl­ustu stundum er ég ýmist í algleymi góðrar ein­semdar eða umvaf­inn fólki sem ég treysti, virði og elska. Himna­rík­inu er einnig líkt við veislu. Þar er hvorki hungur né ein­semd og kenndin lifir áfram í hjört­unum. Ham­ingju­leit­endur grípa gjarnan í tómt því ham­ingjan stendur ekki ein;  hún er afleið­ing. Við­leitni okkar til að gleðja aðra er þess vegna lík­legri til að veita okkur ham­ingju en þegar við elt­umst við hana í eigin þágu.


Einar Mäntylä

framkvæmdastjóri Auðnu tæknitorgs

Ham­ingjan er ástand þar sem hug­ur­inn fer á flug og manni hlýnar öllum inn­vortis, dag­legt amstur hverfur og áhyggjur eru utan sjón­máls. Ham­ingjan er hverful, ann­ars væri hún hvers­dags­leg. Augna­bliks­ham­ingja er til dæmis full­kom­inn hljómur sem hreyfir við ein­hverju frum­stæðu í tauga­kerf­inu. Ég hef upp­lifað þetta bæði sem flytj­andi í kór og sem áheyr­andi. Ham­ingjan er þakk­læti og auð­mýkt. Þú hvorki heimtar ham­ingju né kaupir hana. Peningar hafa yfir­höfuð ekk­ert með ham­ingju að gera; of lítið eða of mikið af þeim stuðlar að  óham­ingju, hóf­lega mikið skapar heldur ekki ham­ingju. Hún er þarna í minnstu hlutum í kringum okkur og það er hægt að koma auga á hana. Þakklæti hjálpar. Húmor léttir leit­ina. Vinátta, fjalla­hringur, börn og barna­börn, stakur hljómur, bragð­upp­lifun, heilsa, starf með til­gang – og ham­ingjan sem hljómar úr mögn­urum bíl­skúrs­bands með vin­unum. Ham­ingjan er jákvæð jól og nei­kvæð Covid-próf.


Sigurður Ingibergur Björnsson

forstjóri Klíníkurinnar

Ham­ingjan er köttur. Hún vitjar mín þegar henni hentar en ef ég elt­ist við hana, vill hún ekk­ert með mig hafa. Ef svo ber undir reyni ég að æðr­ast ekki en reyni heldur að skapa aðstæður sem henni líkar. Þá er hún lík­legri til að koma og strjúka sér upp við mig, að minnsta kosti stund­ar­korn. Henni líkar vel við þakk­læti, að ég taki eftir því þegar fólk­inu mínu gengur vel og að ég sætti mig við að vera ekki full­kom­inn. En fyrst og fremst líkar henni við mig þegar ég reyn­ist öðrum vel.


Sturla Þengilsson

Ham­ingjan er þegar núið kallar ekki á meira af ein­hverju og kemur því oft til manns þegar áfanga hefur verið náð eða á áfanga­stað er komið en líka þegar maður gefst upp fyrir því sem ekki er hægt og þakkar fyrir það sem maður fær áorkað. Hamingja augna­bliks­ins er mjög mik­il­væg til að skilja og skynja ham­ingj­una og hvað mig varðar getur það verið útsýni af fjall­stoppi yfir ósnortna nátt­úru, sam­vera með maka, börnum og barna­börnum eða aleinn í eyði­firði við log­andi varð­eld og sjáv­ar­út­sýni. Söknuður getur líka verið upp­spretta ham­ingju þegar góðar stundir eru rifj­aðar upp með gengnum vinum og ætt­ingjum. Ham­ingjan er allt um kring og þarf bara að veita henni nær­ingu.


Frosti Logason

blaðamaður

Mér finnst alltaf nauð­syn­legt að rækta ham­ingj­una því hún er að mínu mati eitt mik­il­væg­asta hrá­efnið til þess að mér sjálfum líði vel og auð­vitað fólk­inu í kringum mig, fjöl­skyldu og vinum. Sjálfur tel ég helstu ham­ingj­una að finna í ein­fald­leika lífs­ins, góðum sam­skiptum, auð­mýkt og þakk­læti. Ég hef það reyndar fyrir reglu að reyna á hverjum degi að muna eftir því að þylja upp allt það sem ég hef til að vera þakk­látur fyrir og það hefur reynst mér vel. Þannig fæ ég líka auk­inn áhuga á sam­eig­in­legri vel­ferð sam­ferða­manna minna og það hjálpar mér að leggja áherslu á að vera til staðar fyrir aðra. Það veitir mér mikla ham­ingju, frelsi og hug­arró.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár