Úrvinnslusjóður vissi af plastinu en aðhafðist ekkert í meira en ár

Stað­fest er að Úr­vinnslu­sjóð­ur, sem hefur það hlut­verk að fram­fylgja end­ur­vinnslu á Íslandi, vissi í meira en ár af miklu magni af ís­lensku plasti sem var aldrei end­urunn­ið af sænska fyr­ir­tæk­inu Sw­erec þrátt fyrir að greitt hefði verið fyrir það. Stund­in greindi frá plast­inu í októ­ber 2020, um­fjöll­un­in var rædd á stjórn­ar­fundi og stjórn sjóðs­ins fagn­aði um­fjöll­un Stund­ar­inn­ar, án þess þó að aðhaf­ast vegna plast­s­ins.

Úrvinnslusjóður vissi af plastinu en aðhafðist ekkert í meira en ár
Íslenski plast­haug­ur­inn í Svíþjóð Á annað þús­und tonn af plasti frá Íslandi, sem greitt hefur verið fyrir end­ur­vinnslu á, liggur óend­ur­unnið í og við vöru­skemmu í Svíþjóð. Mynd: Davíð Þór

Stjórn Úrvinnslu­sjóðs hafði vit­neskju um allt það íslenska plast sem Stundin fann í vöru­húsi í Svíþjóð nýverið. Í októ­ber 2020 greindi Stundin fyrst frá því að það mætti finna mikið magn af íslensku plasti í vöru­húsi í smá­bænum Påryd í Svíþjóð. Samkvæmt fund­ar­gerð stjórnar Úrvinnslu­sjóðs frá 4. nóv­em­ber 2020 er fjöl­miðlaum­fjöllun um sjóð­inn sér­stak­lega rædd. Segir meðal ann­ars í fund­ar­gerð­inni að gagn­rýni á Úrvinnslu­sjóð í fjöl­miðlum hafi verið rædd og að stjórnin myndi senda frá sér yfir­lýs­ingu vegna hennar.

„Rætt um fram­komna gagn­rýni á Úrvinnslu­sjóð í fjöl­miðlum og upp­lýs­inga­gjöf sjóðs­ins, m.a. á vef hans. Lögð voru fram á fund­inum drög að spurn­ingum og svörum um starf­semi Úrvinnslu­sjóðs og drög að yfir­lýs­ingu stjórnar,“ segir í fund­ar­gerð sjóðs­ins.

Vöru­húsið í SvíþjóðTroð­fullt vöru­hús af meðal ann­ars íslensku plasti

Sögðust fagna umfjöllun Stundarinnar

Þann 3. des­em­ber 2020 sendi svo stjórn Úrvinnslu­sjóðs frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins. Í henni fagnar stjórn sjóðs­ins umfjöllun Stund­ar­innar og segir að það sé úrvinnsla úrgangs hafi fengið til­tölu­lega litla athygli í fjöl­miðlum und­an­farin ár. Hins vegar er ekki minnst á að Úrvinnslu­sjóður ætli á nokkurn hátt að bregð­ast við umfjöll­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

34:02
AfhjúpunPlastið fundið

Íslenska plast­syndin fundin í Svíþjóð

Stundin fann allt að 1.500 tonn af íslensku plasti sem hefur legið óhreyft í um fimm ár í vöru­húsi í Svíþjóð. Allt plastið var sagt end­ur­unnið eða end­ur­nýtt sam­kvæmt töl­fræði Úrvinnslu­sjóðs og var íslenskum end­ur­vinnslu­fyr­ir­tækjum greitt um hund­rað millj­ónir króna fyrir að senda það í end­ur­vinnslu. Fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra segir Úrvinnslu­sjóð bera ábyrgð á að íslenskt plast sé í raun end­ur­unnið. Plastið sligar palest­ínska flótta­manna­fjöl­skyldu í Svíþjóð sem greiðir nú fyrir úrvinnslu á því.

29 mín. lestur

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Plastið fundið

RannsóknPlastið fundið

Heil­brigð­is­eft­ir­litið vissi víst af ólög­legri plast­urðun við Skálholt

Heil­brigð­is­eft­ir­lit Suð­ur­lands vissi í meira en þrjú ár af lög­brotum end­ur­vinn­nslu­fyr­ir­tæk­is­ins Terra án þess að aðhaf­ast neitt í mál­inu. Fram­kvæmda­stjóri eft­ir­lits­ins fékk sjálf senda ábend­ingu um málið en sagð­ist þremur árum seinna aldrei hafa heyrt af því áður. Hún segir ekki ástæðu til að beita við­ur­lögum gegn fyr­ir­tæk­inu.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár