Alvarlegar áhyggjur af stöðu geðheilbrigðismála barna á Íslandi

Barna- og ung­linga­geð­lækna­fé­lag Íslands sendi í dag opið bréf til heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins, mennta- og barna­mála­ráðu­neytis og félags­mála­ráðu­neytis til að lýsa yfir alvar­legum áhyggjum af stöðu geð­heil­brigð­is­mála barna á Íslandi.

Alvarlegar áhyggjur af stöðu geðheilbrigðismála barna á Íslandi
Lýsa áhyggjum af stöðu barna í geð­heil­brigð­is­kerf­inu Barna- og ung­linga­geð­lækna­fé­lag Íslands hafa sent frá sér opið bréf og lýst yfir alvar­legum áhyggjum af stöðu geð­heil­brigð­is­mála barna á Íslandi og skorað á stjórn­völd að aðhaf­ast í mála­flokknum. Mynd: sviðsett / Annie Spratt - unsplash

Aðal­fundur Barna- og ung­linga­geð­lækna­fé­lags Íslands skorar á heil­brigð­is­yf­ir­völd og stjórn­völd að bregð­ast við stöðu geð­heil­brigð­is­mála barna á Íslandi. „Fund­ur­inn skorar á heil­brigð­is­yf­ir­völd og stjórn­völd að bregð­ast við, ekki með fal­legum orðum eða yfir­lýs­ingum heldur skoða mark­visst og heild­rænt hvaða ráð­staf­ana þarf að grípa vegna skorts á fag­fólki, mönn­un­ar­vanda og skipu­lags­vanda sem ein­kennir þennan mála­flokk,“ segir í opnu bréfi sem félagið sendi frá sér í dag, 10. des­em­ber.

Þar stendur einnig að leggja þurfi til fé svo hægt sé að byggja upp geð­heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir öll börn með geð­rænan vanda alls staðar á land­inu og að félagið lýsi yfir „alvar­legum áhyggjum af stöðu geð­heil­brigð­is­mála barna á Íslandi“. 

„Í dag er staðan sú að börn sem þurfa á þjón­ustu að halda fá hana oft ekki fyrr en eftir að hafa beðið í 1 til 3 ár á biðlistum, hjá opin­berum stofn­unum og hjá sér­fræð­ingum á stofu. Slík bið hefur alvar­leg áhrif á þroska og líðan barns,“ segir í bréf­inu. 

Þá er einnig lýst yfir áhyggjum af því álagi sem hefur mynd­ast á bráða­þjón­ustu Barna- og ung­linga­geð­deildar í kjöl­far Covid far­ald­urs­ins en að sögn Guðrúnar B. Guð­munds­dóttur, yfir­læknis á deild­inni, eru 80% af inn­lögnum á deild­ina bráða­inn­lagnir og inn­lögnum fjölgað um 60% á þessu ári. Þessu skýrir hún frá í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar þar sem fjallað er um stöðu geð­heil­brigð­is­mála á Íslandi í sama­burði við Danmörku og reynslu aðstand­enda barna sem þurfa á geð­heil­brigð­is­þjón­ustu að halda. 

Barna-og ung­linga­geð­lækna­fé­lag Íslands segir í bréfi sínu að „ítrekað hefur verið bent á stöð­una“.

„Til­vilj­un­ar­kenndar skipu­lags­breyt­ingar hafa verið gerðar af hálfu heil­brigð­is­yf­ir­valda án alls sam­ráðs við barna- og ung­linga­geð­lækna sem hafa góða yfir­sýn yfir stöðu mála­flokks­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Geðheilbrigðismál barna

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár