Hamingjan er andartakið sem kemur þér fullkomlega að óvörum

Hvað er ham­ingjan fyrir þér?

Helga Rakel Rafnsdóttir

kvikmyndagerðarkona

„Ham­ingjan er hál sem áll, hún er fall­völt og hverful og kannski er hún ekki til. Kannski er ham­ingju­hug­takið grunn­hyggið og tví­vítt, eitt­hvað sem við förum í fleipur með. Kannski er ham­ingju­hug­takið mis­skiln­ingur. Kannski er ham­ingju­hug­takið gildra, syk­ur­húðuð sölu­vara sem nærir tómið innra með okkur og fyllir okkur óseðj­andi löngun í meira. Kannski er ham­ingjan nornin í ævin­týr­inu um Hans og Grétu, norn sem lokkar okkur til sín með sæl­gæti til þess að fita okkur svo að hún geti étið okkur. Og kannski snúum við ekki á ham­ingj­una fyrr en okkur hefur tek­ist að lokka hana inn í bak­ara­ofn og læsa hana þar inni. Þá loks­ins erum við frjáls og getum snúið okkur í hina átt­ina, í átt að villtum skóg­inum, í átt að frels­inu frá því að vera sífellt að leita ham­ingj­unnar.“


Soffía Bjarnadóttir

rithöfundur

„Ég hef hugsað um ham­ingj­una og hún stundum vaf­ist fyrir mér. Ég hef talað við hana og beðið hana um að vera vin­kona mín. Ég gef henni kaffi á morgn­ana, það finnst henni gott. Hún er oft með mér, skrifar, val­hoppar eða fer í mynda­styttu­leik. Þegar ég finn hana ekki þá bíð ég bara róleg því ég veit hún þarf stundum að hvíla sig. Stundum er hún spangólandi og stundum þögul. Henni finnst gott að synda í sjónum, þá heyri ég hana mala. Kannski er hún köttur, kannski auga­steinn sem þekkir leynd­ar­dóma. Kannski er hún hlátur, tón­list, kvik­mynd, kannski kerta­ljós í rökkri, fyr­ir­gefn­ing, fæð­ing. Kannski er hún hús, kannski vöðvi sem þarf að æfa, kannski ást, kannski mildi, matur í ísskáp, kannski fjall, flug­vél, guð. Kannski er hún ilm­andi jurt, sorg­legt ljóð, snjó­koma í sundi, bleikur kjóll, rautt nagla­lakk, kannski faðm­lag, feg­urð, traust, kannski mann­eskja, eld­gos, umbreyt­ing, tár. Ég veit hún er að eiga heima, er þakk­læti og magískur vinur. Ég elska ham­ingju mína og reyni að passa hana alveg eins og hún passar mig.“ 


Friðgeir Einarsson

rithöfundur og sviðslistamaður

„Í gær­kvöldi, þegar við vorum að vaska upp, spurði ég kon­una mína hvernig henni fynd­ist að ég ætti að koma mér hjá því að svara þess­ari spurn­ingu í Stundina: Hvað er ham­ingjan í huga þínum? Hvort ég ætti að segja það hreint út að það væri ein­hvers konar masterklassi í kald­hæðni að ég færi að segja öðru fólki eitt­hvað um ham­ingj­una – eða hvort ég ætti að ljúga mig út úr þessu, segj­ast ekki hafa tíma, hvort það væri kannski síður dramat­ískt. Konan mín spurði af hverju ég hefði tekið þetta að mér. Ég sagð­ist ekki vera alveg viss, að ég hefði haldið að ég myndi finna eitt­hvað út úr þessu. Við kláruðum upp­vaskið í þögn en það lá í loft­inu að frekar en að víkja mér undan þyrfti ég einmitt að gefa þess­ari spurn­ingu meiri gaum.“ 


Halldór Guðmundsson

rithöfundur

„Ham­ingjan er and­ar­takið sem kemur þér full­kom­lega að óvörum og þú vilt að vari. Hún er eins og flóð­bylgja úr óvæntri átt sem hrífur þig með sér á stað sem þig grun­aði ekki að væri til og fjarar síðan út jafn­skjótt. Ham­ingjan er ekki verð­skulduð og það er ekki hægt að vinna sér inn fyrir henni, hún er ekki venju­leg vellíðan og hún er ekki góður grautur sem hægt er að fá upp­skrift að. Kannski er hún sælu­til­finn­ingin sem vaknar með fang­anum sem hefur óvart sest á teikni­bólu í vagn­inum sem á að flytja hann til aftöku þegar hann nær að færa sig um einn rass, svo ég vitni í norska skáldið Hamsun. Ham­ingjan er lífið.“


Silja Hrund Barkardóttir

framhaldsskólakennari, rithöfundur og kvikmyndagerðarkona

„Ham­ingjan er bros, snert­ing, koss, faðm­lag, augna­tillit, orð hvísluð í eyra, þögn, kyrrð og hávaði. Í ham­ingj­unni leyn­ist djúp­stæð sorg því augna­blikið er fall­valt þótt það sé litað gleði. Það að vera ham­ingju­samur er með­vituð ákvörðun þótt vissu­lega læð­ist ham­ingjan oft upp að manni hljóðum fótum eða með skelli sem grípur óvænt. Á sama tíma er ham­ingjan djúp, innri vissa sem er algjör og sam­felld. Ég þarf með­vitað að rækta ham­ingj­una alla daga vegna þess að geri ég það ekki er hætt við að ég missi sjónar á henni, missi hana úr greipum mér, telji að hún búi hjá öðrum en sjálfri mér og vilji ekki kíkja við í heim­sókn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár