Geðhjálp segir fjármuni í geðheilbrigðismál aðeins dropa í hafið

Lands­sam­tökin Geðhjálp segja í umsögn að fjár­laga­frum­varp næsta árs telj­ist von­brigði. Þeir fjár­munir sem ætl­aðir séu mála­flokknum séu langt því frá full­nægj­andi.

Geðhjálp segir fjármuni í geðheilbrigðismál aðeins dropa í hafið
Frum­varpið von­brigði Geðhjálp segir und­ir­fjár­mögnun geð­heil­brigð­is­mála árum og ára­tugum saman valda því að eitt­hvað láti undan. Héðinn Unn­steins­son er for­maður Geð­hjálpar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lands­sam­tökin Geðhjálp telja að fram­lög til geð­heil­brigð­is­mála, sem lögð eru til í frum­varpi til fjár­laga næsta árs, hvergi nærri duga til svo hægt sé að takast á við mála­flokk­inn. Þannig hafi sam­tökin ítrekað bent á að til margra ára geð­heil­brigð­is­mál verið und­ir­fjár­mögnuð hér á landi. Hlutfall fjár­magns til geð­heil­brigð­is­mála hafi verið um tólf pró­sent af heild­ar­fjár­magni til heil­brigð­is­mála, en umfang mála­flokks­ins sé um 30 pró­sent. „Þegar búið er við slíka und­ir­fjár­mögnun í ár og jafn­vel ára­tugi er ljóst að eitt­hvað lætur undan.“

Geðhjálp óskar í umsögn um fjár­laga­frum­varpið eftir því að sam­tökin verði sett á fjár­lög eða að samn­ingur verði gerður við þau til lengri tíma. Stærstur hluti rekrar­fjár sam­tak­anna er sjálfsafla­féa en á bil­inu 20 til 30 pró­sent eru opin­berir styrkir. Þeir styrkir hafa komið í  gegnum styrkja­kerfi heil­brigð­is­ráðu­neytis og félags­mála­ráðu­neytis en eru alla jafna ekki ákveðnir fyrr en í febr­úar ár hvert. Það skapar mikið óhag­ræði fyrir sam­tökin að vita ekki hver opin­ber fram­lög verða fyrr en alm­an­aks­árið er hafið, segir í umsögn­inni.

Geðhjálp segir að fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2022 verði að telj­ast nokkur von­brigði, ekki síst í ljósi stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar. Í honum segir: „Við ætlum að efla geð­heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir alla hópa sam­fé­lags­ins, ekki síst börn og  ung­menni. Geð­heilsuteymi verða efld um land allt, áhrif not­enda á þjón­ust­una aukin, for­varnir bættar og áhersla lögð á að veita fjöl­breytta þjón­ustu sem er miðuð að ólíkum þörfum.“

Ekki hægt að sjá aukningu fjármuna í málaflokkinn

Í fjár­laga­frum­varp­inu, segir í umsögn Geð­hjálpar, skorti sýn til bæði skemmri og lengri tíma í mála­flokknum. Margar spurn­ingar vakni við lestur frum­varps­ins. Þar á meðal nefna sam­tökin tíma­bundna hækkun fram­laga til geð­heil­brigð­is­þjón­ustu, í eitt ár, um 400 millj­ónir króna. Geðhjálp veltir því fyrir sér í umsögn­inni hvert það fjár­magn eigi að fara. „Í ljósi þess verk­efnis og vanda sem lands­sam­tökin Geðhjálp hafa ítrekað bent á sl. miss­eri og ár er þetta út frá fjár­þörf í raun aðeins dropi í hafið.“

„Að setja 100 m.kr. í það verk­efni verður að telj­ast veru­leg von­brigði“
Úr umsögn Geð­hjálpar um fjár­laga­frum­varpið þar sem fjallað er um nið­ur­greiðslu sál­fræði­kostn­aðar

Þá er bent á það í umsögn Geð­hjálpar að í fjár­laga­frum­varp­inu sé gert ráð fyrir að settar verði 100 millj­ónir króna í nið­ur­greiðslu sál­fræði­þjón­ustu. Frumvarp um þá nið­ur­greiðslu var sam­þykkt á Alþingi vorið 2020 en hefur verið ófjár­magnað síðan. „Að setja 100 m.kr. í það verk­efni verður að telj­ast veru­leg von­brigði. Þess ber að geta að lands­sam­tökin Geðhjálp settu árið 2021 rétt um 28 m.kr. í ráð­gjöf og sál­fræði­þjón­ustu sem var opin öllum að kostn­að­ar­lausu. Þetta er meira en fjórð­ungur þeirrar upp­hæðar sem hér er lagt er til að verði sett árlega í nið­ur­greiðslu sál­fræði­þjón­ustu.“

Í fjár­laga­frum­varp­inu segir einnig að lögð hafi verið áhersla á stór­aukna geð­heil­brigð­is­þjón­ustu. „Lands­sam­tökin Geðhjálp sá ekki þessa stór­auknu áherslu á geð­heil­brigð­is­þjón­ustu. Vissu­lega hefur verið við­leitni til að gera betur í mála­flokknum en miðað við það tak­mark­aða fjár­magn sem sett er í mála­flokk­inn og það sem kemur fram í þessu fjár­laga­frum­varpi og fjár­mála­á­tætlun rík­is­stjórn­ar­innar 2022 til 2026 er ekki hægt að tala um aukn­ingu í mála­flokk­inn,“ segir í umsögn­inni.

Geðhjálp gerir þá athuga­semdir við að ein­ungis sé getin viku frestur til að bera fram athuga­semdir við fjár­laga­frum­varps næsta árs. Það sé ekki nægi­legur tími til að fara ítar­lega yfir viða­mikið frum­varp, sem feli ekki ein­ungis í sér fjár­veit­ingar heldur einnig stefnu­þætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár