Stefnir á að draga úr spennu í heiminum

Næstu daga verður tek­ist á um flókin og við­kvæm mál­efni á fundi G7-leið­toga í Frakk­landi. Gest­gjaf­inn Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, seg­ist fara inn á fund­inn með það að mark­miði að draga úr spennu í heim­inum. Hans bíður áskorun um að ná sam­komu­lagi á milli Banda­ríkja­for­seta og ann­arra þjóð­ar­leið­toga.

Banda­lags­ríki úr G7-hópi stór­velda munu í dag reyna að ná saman við Donald Trump Banda­ríkja­for­seta á leið­toga­fundi í Frakk­landi, eftir að Banda­ríkin og Íran náðu sam­komu­lagi um að binda enda á stríðið í Mið-Aust­ur­löndum.

Trump kemur til dval­ar­stað­ar­ins Evian-les-Bains við Gen­far­vatn í Frakk­landi, nýbú­inn að fagna 80 ára afmæli sínu í gær­kvöldi. Banda­lags­ríkin vilja fá nán­ari upp­lýs­ingar um sam­komu­lagið og fyr­ir­hug­aða opnun hins hern­að­ar­lega mik­il­væga Hor­mússunds fyrir skipa­um­ferð.

En Íran verður langt frá því að vera eina eld­fima málið á dag­skrá á þessum þriggja daga fundi, því Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu, er vænt­an­legur þangað á morgun.

Macron stendur frammi fyrir vanda­samri jafn­væg­is­list sem felst í því að hýsa Banda­ríkja­for­seta, sem oft er óút­reikn­an­legur og var aðeins nokkrum klukku­stundum áður við­staddur MMA-bar­daga­kvöld á gras­flöt­inni við Hvíta húsið í til­efni af afmæl­inu sínu.

„Tilbúin til aðgerða“ 

Macron sagði í færslu á Instagram í nótt að á …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár