Mennt er máttur – og lengir lífið

Karlar með háskóla­gráðu lifa tæp­lega fjórum árum lengur en þeir sem eru með grunn­skóla­próf. Thor Aspelund pró­fessor segir menntun sjálf­stæðan þátt sem hefur áhrif á heilsu og lang­lífi. „Menntun sem slík gerir þig hæf­ari til þess að takast á við vanda­mál.“

Mennt er máttur – og lengir lífið
Lang­lífar stúd­ínur? Þessar ungu konur útskrif­uð­ust úr Mennta­skóla Reykja­víkur á dög­unum. Klári þær fram­halds­nám, mega þær búast við löngu og von­andi gæfu­ríku lífi. Mynd: Golli

Ævilengd íslenskra karl­manna með grunn­skóla­menntun hefur styst um hálft ár síð­asta ára­tug, á meðan konur með háskóla­menntun lifa ári lengur en þá. Thor Aspelund, pró­fessor í líf­töl­fræði við Háskóla Íslands, segir þetta ekki sér­ís­lenska söðu, heldur sé það þekkt víða og verið til umfjöll­unar á Norð­ur­lönd­unum að fólk með grunn­skóla­próf lifi skemur en fólk með háskóla­menntun. Það sé áhyggju­efni að bilið sé að breikka. Hann hefur meðal ann­ars rann­sakað tengsl á milli mennt­un­ar­stigs og áhættu á kransæða­sjúk­dómum, þar sem í ljós kom að fólk með minni menntun er lík­legra til að fá hjarta­á­fall en aðrir sem eru með lengri skóla­göngu. 

Nýjar tölur frá Hagstofu Íslands sýna að árið 2025 var ólifuð með­al­ævi 30 ára kvenna með grunn­skóla­menntun 52,5 ár á meðan þrí­tugir grunn­skóla­mennt­aðir karlar máttu búast við því að lifa 48,5 ár til við­bótar. Konur með fram­halds­skóla­menntun gátu vænst þess að lifa tæp­lega þremur árum lengur en stall­systur þeirra …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár