Guðmundur fær tæpan 1,5 milljarð í arð

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, sem Guð­mundur Krist­jáns­son á að fullu, hagn­að­ist um rúma 2,9 millj­arða króna í fyrra. Hann hefur einnig keypt útgerð­ina Þórsnes í Stykk­is­hólmi.

Guðmundur fær tæpan 1,5 milljarð í arð
Guð­mundur Krist­jáns­son For­stjóri Brims á Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur að fullu. Mynd: Brim

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hagn­að­ist um 19,9 millj­ónir evra, eða rúma 2,9 millj­arða króna, í fyrra sam­kvæmt árs­reikn­ingi. Hagnaður jókst marg­falt frá fyrra ári og má hann að mestu rekja til vel­gengni útgerð­ar­fé­lags­ins Brims.

Lagt er til að félagið greiði hlut­höfum sínum 9,9 millj­ónir evra í arð eða rétt tæpan 1,5 millj­arð króna. Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri Brims, er end­an­legur eig­andi alls hluta­fjár í félag­inu í gegnum ýmis félög en arð­greiðslan skipt­ist á milli þeirra félaga.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur á tæpan 44 pró­senta hlut í Brimi, en félögin gera bæði upp í evrum. „Hlut­deild í afkomu [Brims] jókst úr 17,8 millj­ónum evra árið 2024 í 26,4 millj­ónir evra árið 2025,“ segir í árs­reikn­ingnum. „Aukning hagn­aðar Brims hf. má rekja til hærri afurða­verða á mik­il­vægum botn­fisk­teg­undum auk mak­ríls.“

Í árs­reikn­ingnum kemur fram að rekstar­tekjur …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Hvert er hlutfall skattgeiðslna af arði þeirra sem eiga hlutabréf? Af hverju greiðir láglaunafólk hærri skatt en þeir sem fá milljarða í arð?
    Skattprósenta af arði og öðrum fjármagnstekjum er 22% muni eg rétt. En skatthlutfall vegna tekjuskatts er um hálfu hærra eða yfir 30%.
    Mjög sanngjarnt væri að miða skatt af fjármagnstekjum sama og lægst skattþrepið er. Það mætti jafnvel breyta fjármagnstekjuskattinum þannig að hann væri þrepaskiptur eins og með tekjuskattinn.
    Ójöfnuður fer sífellt vaxandi, því miður á Íslandi. Þeir sem eiga nóg fyrir sig og sína hafa mun meiri tekjur en þeir sem minna mega sín. Það hefur alltaf þótt vera réttmætt að taka þátt í sameiginlegum rekstri samfélagsins.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu