Býðst að fá arðgreiðslur frá Brimi í evrum

Útgerðar­félagið Brim hefur gert upp í evrum árum saman en nú hefur komið fram að hluthafar geta einnig fengið arð sinn greiddan í evrum. Forstjóri og stærsti eigandi Brims hvatti til þjóðar­atkvæða­greiðslu um aðild að Evrópu­sambandinu og varaði við hagsmunum stjórn­málamanna af því að halda í krónuna.

Guðmundur Kristjánsson
Guð­mundur Krist­jáns­son For­stjóri Brims segir íslenska stjórn­mála­menn ótt­ast evr­una. Mynd: mbl/Kristinn Magnússon

Hluthafar Brims, stærsta einstaka útgerðar­félags landsins, geta fengið arðgreiðslur sínar í evrum. Fyrir­tækið hefur gert upp í evrum um árabil.

Fiskifréttir greindu fyrst frá þessu en þetta var tilkynnt í niður­stöðum aðal­fundar Brims 19. mars síðastliðinn. Sagði stjórnar­formaður Brims, Kristján Þ. Davíðsson, við blaðið að þetta væri til þæginda­auka fyrir báða aðila enda þyrfti félagið þá ekki að breyta evrum í krónum til að borga hluthöfum út arð í krónum sem þeir ætli síðan að skipta aftur yfir í evrur. Mun hluthöfum hafa staðið þetta til boða síðan 2021.

„Hluthöfum mun standa til boða að fá arðgreiðslu í evrum, sem mun byggja á ISK/EUR miðgengi Seðla­banka Íslands eins og það er tilgreint við lok dags, síðasta dag fyrir arðgreiðslu, eða 29. apríl 2026,“ segir í niður­stöðunum. „Hluthafar sem hyggjast óska eftir arðgreiðslu í evrum skulu tilkynna félaginu það fyrir lok dags 15. apríl 2026 á þar til gert …

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Sammála Guðmundi.
    0
  • Haraldur Jonsson skrifaði
    Guðmundur sker sig úr með flest það sem snertir útgerð og fiskvinnslu. Veit hvað ahnn vill og þorir að taka ákvarðanir. Úrvalsmaður í alla staði. Það væri ýmislegt öðruvísi ef aðrir útgerðarmenn mundu einu sinni getað hugsað öðruvísi eða ekki bara um sjállfan sig.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár