Telja mikilvægt að plastbarkamálið fái umfjöllun á æðra dómstigi

Rík­ið hef­ur ákveð­ið að áfrýja úr­skurði Hér­aðs­dóms Reykja­vík­ur sem dæmdi rík­ið skaða­bóta­skylt vegna plast­barka­máls­ins.

Telja mikilvægt að plastbarkamálið fái umfjöllun á æðra dómstigi
Andemariam og Tómas Andemariam var skjólstæðingur Tómasar Guðbjartssonar skurðlæknis. Sjálfur hefur Tómas sagt að hann hafi sjálfur verið blekktur af ítalska skurðlækninum sem afplánar nú fangelsisdóm vegna málsins.

Íslenska ríkið hefur tekið ákvörðun um að áfrýja dómi héraðsdóms í svokölluðu plastbarkamáli til Landsréttar. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðs Íslands.

Þar segir að með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 21. maí síðastliðnum hafi íslenska ríkið verið dæmt skaðabótaskylt vegna plastbarkaaðgerðar sem framkvæmd var á Andemariam Teklesenbet Beyene á Karolinska háskólasjúkrahúsinu árið 2011. Háttsemi læknis Landspítala, sem kom að meðferðinni og vísaði sjúklingnum í hana, var í dómnum talin ein af orsökum tjónsins og á henni bæri íslenska ríkið vinnuveitendaábyrgð.

Læknirinn umræddi er Tómas Guðbjartsson, en hann hefur gagnrýnt úrskurðinn í yfirlýsingu og sagt hann í engu samræmi við það sem raunverulega gerðist. Þá hefur hann einnig gagnrýnt að hann hafi ekki verið kallaður til vitnis í skaðabótamáli ekkju Andemariams.

Læknirinn, Paolo Macchiarini, sem framkvæmdi aðgerðina á Andemariam í Svíþjóð, var árið 2023 sakfelldur fyrir að hafa valdið honum og tveimur öðrum einstaklingum sem undirgengust sambærilega aðgerð stórkostlegu líkamstjóni af ásetningi.

Málið vakti á sínum tíma heimsathygli og hefur verið mikið rannsakað, bæði hér á landi og í Svíþjóð.

Svo segir í yfirlýsingu ríkisins að „mikilvægt [sé] að mati ráðuneytisins að svo sérstakt og alvarlegt mál fái umfjöllun á æðra dómstigi og að niðurstaða þess og röksemdir teljist eins óumdeildar og unnt er, ekki einungis fyrir þetta mál heldur sem leiðarljós fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi og heilbrigðisstarfsmenn til framtíðar.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt
5
Stjórnmál

Sig­mund­ur Dav­íð vill af­nema erfða­fjárskatt

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son og sjö aðr­ir þing­menn reyna nú aft­ur að af­nema erfða­fjárskatt. Þau vísa með­al ann­ars til OECD en stofn­un­in hef­ur einnig fært sterk rök fyr­ir skatt­lagn­ingu þeg­ar um stór­an arf er að ræða. Það á til að mynda við um það þeg­ar eig­in­kona Sig­mund­ar fékk rúm­an millj­arð króna í fyr­ir­fram­greidd­an arf sem fór síð­ar inn í af­l­ands­fé­lag­ið Wintris.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ásgeir Brynjar Torfason
5
Pistill

Ásgeir Brynjar Torfason

Und­ir pils­faldi Banda­ríkj­anna

Hvernig lít­ur það út að hafa hafn­að að­ild­ar­við­ræð­um ut­an frá? Með því að úti­loka þann kost, hvernig bregð­umst við hér þá við breytt­um heimi? Ein leið er að taka landa­korti banda­ríska for­set­ans, sem sett hef­ur fána­lit­ina á yf­ir­ráða­svæð­ið sitt, sem gríni. Hvorki Kan­ada né Mexí­kó taka því gríni. Eyj­ar­skeggj­ar á Jamaíku og Kúbu eru lík­leg­ast hrædd­ir. Kannski er það kost­ur að vera bara kok­hraust.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu