Allt að 195 á lífeyri vegna langvinns covid

Fjöldi þeirra sem þiggja líf­eyri vegna eft­ir­stöðva covid-sýk­inga hefur tvö­fald­ast á tveimur árum. Þrír líf­eyr­is­þeg­anna eru á aldr­inum 18 til 19 ára en þrefalt fleiri konur en karlar eru með þessa grein­ingu.

Allt að 195 á lífeyri vegna langvinns covid
Sýnataka 195 manns eru með „þreytu­heil­kenni eftir veiru­sýk­ingu og eft­ir­stöðvar covid“ sem fyrstu sjúk­dóms­grein­ingu í lækn­is­vott­orði vegna líf­eyris. Mynd: EPA

Fjöldi þeirra sem þiggja líf­eyri frá Trygg­inga­stofnun Ríkisins vegna lang­vinns covid hefur tvö­fald­ast á tveimur árum. Þetta kemur fram í svari Trygg­inga­stofn­unar við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar.

Langvinn veik­indi eða ný ein­kenni eftir bráða­fasa covid-19 sýk­ingar hafa verið kölluð long covid á ensku eða lang­vinnt covid á íslensku. Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin WHO skil­greinir lang­vinnt covid sem áfram­hald eða þróun nýrra ein­kenna þremur mán­uðum eftir upp­haf sýk­ingar. Þau ein­kenni þurfa að hafa varað í tvo mán­uði og ekki eiga aðra skýra orsök.

1. des­em­ber 2025 voru 195 ein­stak­lingar með þreytu­heil­kenni eftir veiru­sýk­ingu og eft­ir­stöðvar covid sem fyrstu sjúk­dóms­grein­ingu í lækn­is­vott­orði, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Trygg­inga­stofnun.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá stofn­un­inni fyrir tæpum tveimur árum voru 85 manns, þar af 60 konur og 25 karlar, á örorku- eða end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri af þessum orsökum 1. des­em­ber 2023.

Til sam­an­burðar voru átta manns með þessa grein­ingu 1. des­em­ber 2019, áður en covid-far­ald­ur­inn bloss­aði upp á …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Aumingjansfolkiðsegiegnúbar
    0
  • ÓS
    Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
    Það er ég viss um að flestir með svokallað long covid er marg sprautað svo það að segja að bólusetning minnki líkurnar á langvinnum veikindum er ansi ólíklegt..
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár