Allt að 85 á lífeyri vegna eftirstöðva covid sýkingar

Fleiri konur en karlar hér­lendis þiggja líf­eyri vegna eft­ir­stöðva covid sýk­ingar. Hundruð hafa fengið end­ur­hæf­ingu á heilsu­stofn­unum.

Allt að 85 á lífeyri vegna eftirstöðva covid sýkingar
Covid próf Hundruð hafa fengið end­ur­hæf­ingu á Reykja­lundi og Heilsu­stofnun NLFÍ eftir covid sýk­ingar. Mynd: Shutterstock

Allt að 85 manns, þar af 60 konur og 25 karlar, voru á örorku- eða end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri vegna lang­tíma­á­hrifa covid sýk­ingar í lok árs í fyrra.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Trygg­inga­stofnun voru 85 ein­stak­lingar skráðir með líf­eyri vegna sjúk­dóms­grein­ing­anna „þreytu­heil­kenni eftir veiru­sýk­ingu og eft­ir­stöðvar covid“ sem fyrstu sjúk­dóms­grein­ingu 1. des­em­ber í fyrra. Miðað er við að fyrsta grein­ing í lækn­is­vott­orði sé vegna þeirra veik­inda sem vega þyngst.

Til sam­an­burðar voru 8 manns, 3 karlar og 5 konur, með þessa grein­ingu sem fyrstu skrán­ingu þann 1. des­em­ber árið 2019. Þá hafði covid far­ald­ur­inn ekki blossað upp á Íslandi og því lík­lega helst um að ræða fólk sem þiggur líf­eyri vegna ME/CFS grein­ingar, það er ME (myalgic encephalomyelitis), þreytu­heil­kennis eftir veiru­sýk­ingu, og CFS (chronic fatigue syndrome), síþreytu.

Einkenni margra þeirra sem þjást af svoköll­uðu „long covid“ passa við ein­kenni ME og CFS. Á meðal „long covid“ ein­kenna eru síþreyta, önd­un­ar­erf­ið­leikar, minnistap, svefn­vanda­mál, hósti, bein­verkir, þung­lyndi, kvíði og tap á bragð- og lykt­ar­skyni. Ekki er vel þekkt hvað getur valdið þessum lang­tíma­á­hrifum eftir covid sýk­ingar.

Þá sömdu Sjúkra­trygg­ingar Íslands við Reykja­lund og Heilsu­stofnun Náttúru­lækn­inga­fé­lags Ís­lands um þjón­ustu við fólk sem glímir við afleið­ingar covid og hafa hund­ruð manns fengið end­ur­hæf­ingu.

Verðugt rannsóknarefni

Heim­ildin óskaði eftir upp­lýs­ingum frá Trygg­inga­stofnun um fjölda þeirra sem þiggja örorku- eða end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri vegna „long covid“ ein­kenna. Samkvæmt stofn­un­inni eru flestir líf­eyr­is­þegar með sam­settan vanda og því margar sjúk­dóms­grein­ingar að baki örorku­mats.

Erfitt er að segja út frá gögnum Trygg­inga­stofn­unar hvert fram­lag hverrar sjúk­dóms­grein­ingar er til skertrar starfs­getu en miðað er við að sú fyrsta vegi þyngst. Því getur verið að fleiri sem þiggja líf­eyri glími við „long covid“ þó það séu ekki þau veik­indi sem vega þyngst í óvinnu­færni þeirra.

„Það væri verð­ugt rann­sókn­ar­efni að varpa skýr­ara ljósi á afleið­ingar far­ald­urs­ins á starfs­getu“

„Það væri verð­ugt rann­sókn­ar­efni að varpa skýr­ara ljósi á afleið­ingar far­ald­urs­ins á starfs­getu og þróun hjá end­ur­hæf­ingar- og örorku­líf­eyr­is­þegum sér­stak­lega, en slík rann­sókn liggur ekki fyrir,“ segir í svari Trygg­inga­stofn­unar.

Samkvæmt alþjóð­legum rann­sóknum hafa um 400 millj­ónir manns á heims­vísu upp­lifað „long covid“. Talið er að 10 pró­sent þeirra sem smit­ast af covid glími við eft­ir­köst. Fyrir utan áhrif á heilsu og líðan fólks er talið að efna­hags­legt tap vegna þessa geti numið allt að 1 pró­sent af lands­fram­leiðslu heims­byggð­ar­innar.

Bólusetningar dragi úr líkum á „long covid“

Samkvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­inni (WHO) draga bólu­setn­ingar gegn covid úr líkum þess að „long covid“ ein­kenni komi fram. Rúmt ár er liðið frá því að stofn­unin aflýsti neyð­ar­á­standi á heims­vísu vegna far­ald­ur­ins. Sum­ar­bylgja covid hefur þó riðið yfir bæði hér­lendis og víða erlendis og mælir stofn­unin enn með bólu­setn­ingum fyrir fólk í áhættu­hópum.

Embætti land­læknis greindi frá því á dög­unum að bólu­efni hefðu komið í veg fyrir 542 dauðs­föll á Íslandi. Komu þau í veg fyrir 70 pró­sent þeirra dauðs­falla sem ann­ars hefðu orðið, mest­megnis hjá fólki eldra en 60 ára. Rannsókn WHO þess efnis var birt í tíma­rit­inu The Lance Respiratory Medicine á dög­unum og lagði sótt­varn­ar­læknir íslensk gögn til rann­sókn­ar­innar og er með­höf­undur grein­ar­innar.

„Flest manns­líf­anna sem var bjargað voru meðal 60 ára eða eldri“

Telur WHO að dauðs­föllum vegna heims­far­ald­urs covid hafi fækkað um 59 pró­sent frá des­em­ber 2020 til mars 2023 vegna notk­unar bólu­efna við covid. Bólu­efnin hafi þannig bjargað 1,6 millj­ónum manns­lífa á Evr­ópu­svæði stofn­un­ar­innar.

„Flest manns­líf­anna sem var bjargað voru meðal 60 ára eða eldri en það er sá hópur sem er í mestri hættu á alvar­legum veik­indum og dauða af völdum SARS-CoV-2 veirunnar, sem veldur COVID-19,“ segir í til­kynn­ingu emb­ættis land­læknis um grein­ina.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár