Þrestir gerðu sér hreiður á reiðhjóli í Stykkishólmi

Fjöl­skylda á Snæ­fells­nesi birti myndir af fugla­lífi við glugga heim­ilis síns við mikla gleði net­verja. Vonir standa til að fjöl­skyldu­hund­ur­inn og skilti sem dóttirin mál­aði dugi til að hvorki kettir né læsir raski ró þrastar­fjöl­skyld­unnar.

Þrestir gerðu sér hreiður á reiðhjóli í Stykkishólmi
Hreiður í hjóla­körfu Þrastapar gerði sér hreiður upp við glugga heim­ilis á Snæ­fells­nesi. Mynd: Eva Rut Ellertsdóttir

„Ég held ég noti hjólið mitt ekki mikið í sumar,“ skrifar Eva Rut Ell­erts­dóttir, íbúi í Stykk­is­hólmi, í Facebook-hóp­inn Fuglar á Íslandi og ungar þeirra. „Þetta fal­lega þrastapar búið að koma sér vel fyrir í körf­unni. Hjólið stendur við glugga svo við fjöl­skyldan getum fylgst vel með án þess að trufla þau.“

Eva Rut og fjöl­skylda bíða nú þol­in­móð eftir því að eggin klekj­ist en þau voru orðin fjögur sam­kvæmt nýj­ustu taln­ingu fjöl­skyld­unnar.

Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Eva Rut fjöl­skyld­una finna mikið fyrir návist nátt­úr­unnar. „Við búum við móa og fjöru og hér er mikið fugla­líf,“ segir hún. „Þetta er í fyrsta sinn sem þeir verpa svona nálægt okkur, þeir hafa þó verpt í trén í garð­inum hjá okkur. Það býr líka einn tjaldur í göt­unni okkar.“

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár