Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni

Við­skipta­veldi Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur byggir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ísfé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arðar streymt úr Ísfé­lag­inu í Vest­manna­eyjum til Guð­bjargar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ingar hennar koma fram í skýrslu sem unnin var að beiðni Alþingis um eignir, eig­endur og fjár­fest­ingar stærstu útgerð­ar­fé­laga lands­ins.

Umfangs­miklar fjár­fest­ingar Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, útgerð­ar­konu í Vest­manna­eyjum, hafa byggst á nærri fimmtán millj­arða króna arð­greiðslum út úr útgerð hennar, Ísfé­lag­inu, á síð­ustu ára­tugum. Guðbjörg er einn umsvifa­mesti einka­fjár­festir lands­ins og á, í gegnum fjár­fest­inga­fé­lög, allt frá heild­sölum til hjúkr­un­ar­þjón­ustu eldri borg­ara.

Guðbjörg tók við stjórn fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­is­ins eftir frá­fall Sigurðar Ein­ars­sonar, eig­in­manns síns og for­stjóra Ísfé­lags­ins, og hefur veldið stækkað mikið síðan. Með fjár­munum úr útgerð­inni hefur Guðbjörg gerst umsvifa­mik­ill fjár­festir í heild­sölu­fyr­ir­tækjum eins og Íslensk-Ameríska, þekktum fram­leiðslu­fyr­ir­tækjum eins og Myllunni og Ora, og í fjöl­miðlum eins og Sýn, sem og einka­reknum heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum.

Ísfé­lagið er meðal þeirra fyr­ir­tækja sem fjallað er um í nýlegri skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands, sem falið var af atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu að greina raun­veru­legt eign­ar­hald og fjár­fest­ingar stórra íslenskra útgerð­ar­fé­laga. Skýrslan svarar þessum spurn­ingum þó aðeins að litlum hluta og er Guðbjörg dæmi um það. Hvorki nafn hennar né fjár­fest­ingar koma fram í skýrsl­unni, þrátt fyrir að …

Kjósa
74
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GRR
    Gísli Ragnar Ragnarsson skrifaði
    Þarf eigandi auðlindarinnar ekki að fara sýna meiri hirðusemi og innheimta eðlilegt afgjald frá þeim sem auðlindina nýta og hafa enn til þess einkaleyfi? Tíu milljarðarnir, eða hvað að varð að lokum, var gott fyrsta skref en nú þarf að fara að huga að því næsta. Hefjast þarf handa sem fyrst.
    5
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Kapítalisminn er yndislegur, hann nær alltaf að svindla sér framhjá öllu löglega og sannfæra Landann(Framsóknarmenn) um sitt ágæti. Er með öll kerfin í vasanum, enda nógir peningar.
    4
    • GRR
      Gísli Ragnar Ragnarsson skrifaði
      Þetta er varla kapítalismi. Frekar kleptokrati eða þjófræði.
      1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Guðbjörg var með þeim fyrstu sem mótmæltu veiðigjöldunum !
    9
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Vá!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár