Þessum götum í Reykjavík er lokað í dag

Tölu­verðar götu­lok­anir verða í mið­borg Reykja­víkur í dag vegna hátíð­ar­halda dags­ins. Götum verður lokað á mis­mun­andi tímum en rask­an­irnar standa yfir frá klukkan 7 til 18,

Þessum götum í Reykjavík er lokað í dag
Hátíð í bæ Mikil hátíða­höld verða í mið­borg Reykja­víkur í dag og verður því ýmsum leiðum lokað fyrir bíla­um­ferð. Mynd: Shutterstock

Tölu­verðar götu­lok­anir og umferð­ar­rask­anir verða í mið­borg Reykja­víkur í dag vegna hátíða­halda. Rask­an­irnar standa yfir frá klukkan 7 til 18, en mis­mun­andi götur verða lok­aðar á ólíkum tímum dags.

Í tengslum við morg­un­athöfn á Aust­ur­velli verða Skólabrú, Kirkju­stræti, Póst­hús­stræti, Templ­ara­sund og Von­ar­stræti lok­aðar frá klukkan 7. Lok­an­irnar standa til klukkan 12, en umferð um Skólabrú, Kirkju­stræti og Póst­hús­stræti verður áfram lokuð til klukkan 13.

Þá verða tak­mark­anir á umferð um Suð­ur­götu, Túngötu og Aðal­stræti á milli klukkan 11.45 og 12.30.

Vegna skrúð­göngu, sem fer frá Hall­gríms­kirkju og þaðan í Hljóm­skála­garð, verða frek­ari lok­anir í mið­borg­inni á milli klukkan 12 og 14. Lokað verður við Eiríks­götu og Bar­óns­stíg, Eiríks­götu og Njarð­ar­götu, Frakka­stíg og Berg­þóru­götu, Skóla­vörðu­stíg og Berg­stað­ar­stræti og við Banka­stræti.

Tak­mark­anir verða einnig á umferð um götur sem þvera Skóla­vörðu­stíg og Banka­stræti. Það á við um Kárastíg, Bjarn­ar­stíg, Bald­urs­götu, Týsgötu, Ing­ólfs­stræti, Þing­holts­stræti og Skóla­stræti.

Á sama tíma verður Lækj­ar­götu lokað frá Hverf­is­götu. Einnig verður lokað um Frí­kirkju­veg, Sól­eyj­ar­götu og Skot­hús­veg vestan Frí­kirkju­vegs. Skál­holts­stígur verður lok­aður fyrir neðan Lauf­ás­veg, Braga­gata fyrir neðan Fjólu­götu og Fjólu­gata norðan við Braga­götu.

Lauga­vegur verður þó opinn að Frakka­stíg.

Í tengslum við fjöl­skyldu­dag­skrá í Hljóm­skála­garði verða Frí­kirkju­vegur frá Von­ar­stræti, Sól­eyj­ar­gata og Skot­hús­vegur vestan Frí­kirkju­vegs lokuð frá klukkan 14 til 18. Þá verða Skál­holts­stígur, Braga­gata og Fjólu­gata áfram lokuð með sama hætti og fyrr um dag­inn.

Breyt­ingar verða einnig á ein­hverjum leiðum Strætó vegna hátíða­hald­anna og er far­þegum bent á að kynna sér nán­ari upp­lýs­ingar hjá Strætó áður en lagt er af stað.

LokanirÁ þessu korti Reykja­vík­ur­borgar má sjá hvaða götum verður lokað í dag.
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár