Hoppukastalar og hátíðardagskrá um allt land á 17. júní

Há­tíð­ar­dag­skrá er víða um land í dag, á þjóð­há­tíð­ar­degi Ís­lend­inga. Íbú­ar í mörg­um sveit­ar­fé­lög­um eru hvatt­ir til að skilja bíl­ana eft­ir heima en götu­lok­an­ir verða í mið­bæ Reykja­vík­ur.

Hoppukastalar og hátíðardagskrá um allt land á 17. júní
Stuð Sautjánda júní er fagnað víða með fánum, gasblöðru, ýmsum sætindum og skrúðgöngum. Mynd: Golli

Fjölbreytt dagskrá verður í boði víða um land í dag, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Sveitarfélögin bjóða meðal annars upp á skrúðgöngur, hátíðardagskrár, tónleika, barnaskemmtanir, hoppukastala, andlitsmálun, kaffihlaðborð og ýmsa útiviðburði.

Reykjavík

Í Reykjavík hefst hátíðardagurinn með hátíðarathöfn á Austurvelli klukkan 11 þar sem forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, heldur ávarp.

Þjóðhátíðarskrúðganga leggur af stað frá Hallgrímskirkju klukkan 13 og gengur niður Skólavörðustíg að Hljómskálagarði. Þar verða tónleikar og fjölskyldudagskrá frá klukkan 13.30 til 17. Í boði verða meðal annars náttúruþrautabraut, leiktæki, hoppukastali, sirkuslistafólk, listhópar, Götuleikhúsið, Húlladúllan, Hringleikur, tröll og matarvagnar.

Á Klambratúni hefst dagskrá klukkan 13. Þar verða leiktæki, matarvagnar, plötusnúðar og dansatriði, meðal annars frá Dansi Brynju Péturs.

Götulokanir verða í miðborginni meðan hátíðarhöld standa yfir.

ÁvarpHalla Tómasdóttir forseti flytur ávarp á Austurvelli klukkan 11. Skátarnir standa heiðursvörð með íslenska fánann á meðan.

Kópavogur

Í Kópavogi verður hátíðardagskrá á tveimur stöðum, á Rútstúni og við Versali. Á báðum stöðum verða hátíðarsvæðin opnuð klukkan 12 með hoppuköstulum, leiktækjum og andlitsmálun.

Skrúðganga hefst við Menntaskólann í Kópavogi klukkan 13.30 og henni lýkur á Rútstúni. Þar verður hátíðardagskrá frá klukkan 14 til 16. Eva Ruza og Hjálmar Örn kynna og fram koma meðal annars fjallkona Kópavogs, Leikhópurinn Lotta, Úlfur Úlfur, Bríet, Latibær og VÆB.

Við Versali verður einnig dagskrá frá klukkan 14 til 16. Þar koma fram Latibær, VÆB, Leikhópurinn Lotta, Aron Can og Bríet. Saga og Snorri kynna.

Veltibíllinn verður við Sundlaug Kópavogs frá klukkan 12 til 16.

Hafnarfjörður

Í Hafnarfirði verður dagskrá frá morgni til kvölds í miðbænum og víðar. Dagurinn hefst klukkan 8 með fánahyllingu á Hamrinum. Frá klukkan 10 verður meðal annars boðið upp á sjósund og gufu við Langeyrarmalir og opið hús hjá Brettafélagi Hafnarfjarðar.

Víkingahátíð verður á Víðistaðatúni frá klukkan 11 til 18 og skrúðganga leggur af stað frá Flensborgarskóla klukkan 13.

Þjóðhátíðarsviðið við Ráðhústorg hefst klukkan 13.30. Þar koma meðal annars fram Karlakórinn Þrestir, Fjallkonan, Prinsessurnar þrjár, Listdansskóli Hafnarfjarðar, Ingó Töframaður, Ormstunga, Latibær, Skoppa og Skrítla og DJ BFK.

Fjölskyldudagskrá verður einnig á Hörðuvöllum, í Hellisgerði, í íþróttahúsinu við Strandgötu og víðar. Börn geta meðal annars farið í leiksmiðju, fengið andlitsmálun og farið í hoppukastala.

Klukkan 17 verður brekkusöngur barnanna í Hellisgerði. Um kvöldið, frá klukkan 19, verður tónlistarveisla við Ráðhústorg þar sem fram koma meðal annars Lúðrasveit verkalýðsins, Elín Hall, Elvar, gugusar, Kristmundur Axel og Jón Jónsson.

Miðbær Hafnarfjarðar verður lokaður fyrir bílaumferð meðan á hátíðarhöldum stendur.

Garðabær

Í Garðabæ verður hátíðardagskrá á Garðatorgi. Skrúðganga leggur af stað frá Hofsstaðaskóla klukkan 13. Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar og Skátafélagið Vífill leiða gönguna að Garðatorgi.

Frá klukkan 13.30 til 15.45 verður hátíðardagskrá þar sem blásarasveit leikur, fjallkona les ljóð og bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar ávarpa gesti. Gunni og Felix kynna dagskrá fyrir yngstu gestina. Fram koma meðal annars Húbba Búbba, Skoppa og Skrítla, Sólon og Dimma dúskur, Leikfélagið Fuglabjarg og Sigga Ózk.

Frá klukkan 13.30 til 16 verða hoppukastalar, kandífloss, föndursmiðja, andlitsmálun og krakkakaraókí. Kvenfélag Garðabæjar verður með kaffihlaðborð í Sveinatungu.

Á Álftanesi verður sund opið frá klukkan 10 til 14 og Hönnunarsafn Íslands verður opið frá klukkan 12 til 17. Um kvöldið, klukkan 20, verða ókeypis tónleikar salonhljómsveitarinnar L’amour fou í Tónlistarskóla Garðabæjar.

Á tveimur stöðumDimma dúskur og Sólon verða bæði í Kópavogi og Mosfellsbæ.

Mosfellsbær

Í Mosfellsbæ hefst dagurinn með hátíðarguðsþjónustu í Lágafellskirkju klukkan 11. Skrúðganga leggur af stað frá Miðbæjartorginu klukkan 13.30 og fer að Hlégarði.

Fjölskyldudagskrá við Hlégarð hefst klukkan 14. Þar verða meðal annars skólahljómsveit og Lúðrasveit Mosfellsbæjar, hátíðarræða bæjarstjóra, ávarp fjallkonu, Vísinda Villi, Hver vill vera prinsessa?, Leikfélag Mosfellssveitar með Kardemommubæinn, Ávaxtakarfan, Leikhópurinn Lotta og Sólon og Dimma dúskur.

Klukkan 16 verður aflraunakeppni á Hlégarðstúni þar sem keppt verður um titilinn Sterkasti maður Íslands í flokki undir 90 kílóum.

Frá klukkan 14 til 16 verður kaffihlaðborð í Hlégarði. Einnig verða pylsusala, sölutjöld, andlitsmálun og hoppukastalar.

Reykjanesbær

Í Reykjanesbæ fer dagskráin fram í skrúðgarðinum í Keflavík og í ungmennagarðinum við 88-húsið.

Hátíðarguðsþjónusta verður í Keflavíkurkirkju klukkan 12. Að henni lokinni verður gengið með hátíðarfánann í skrúðgarðinn undir forystu skáta úr Heiðabúum og Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Í skrúðgarðinum verður hefðbundin hátíðardagskrá með fánahyllingu, þjóðsöng, setningarræðu, ávarpi fjallkonu og ræðu dagsins.

Að lokinni hátíðardagskrá tekur við skemmtidagskrá. Þar koma meðal annars fram Ungleikhúsið, Leikfélag Keflavíkur, Taekwondodeild Keflavíkur, DansKompaní, Guðrún Árný, Sirkus Íslands og Guðjón Kristjánsson, sigurvegari Söngkeppni framhaldsskólanna.

Í garðinum verða leikjastöðvar, hestar, andlitsmálning, hoppukastalar og þjóðhátíðarnammi. Skemmtidagskráin er ókeypis.

Frá klukkan 18 til 20 verður dagskrá fyrir ungmenni við 88-húsið, meðal annars sápubolti, búbblubolti, vatnsbað og körfuboltamót. DansKompaní og Ízleifur koma þar fram.

Frítt verður í innanbæjarstrætó og Duus safnahús verður með ókeypis aðgang í tilefni dagsins.

Akureyri

HátíðarsvæðiðHér má sjá kort af hátíðarsvæðinu á Akureyri.

Á Akureyri leggur skrúðganga Skátafélagsins Klakks og Lúðrasveitar Akureyrar af stað frá gamla húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti klukkan 12.30 og fer í Lystigarðinn.

Blómabíll Akureyrar leggur af stað frá Naustaskóla klukkan 11 og ekur um bæinn með 17. júní lög.

Hátíðardagskrá í Lystigarðinum verður frá klukkan 13 til 13.45. Þar verður meðal annars fánahylling, Lúðrasveit Akureyrar, bænagjörð og blessun, Kór eldri borgara, fjallkonan og ávarp bæjarstjóra.

Fjölskylduskemmtun verður í Lystigarðinum frá klukkan 13.45 til 16. Þar koma meðal annars fram Vilhjálmur B. Bragason, bæjarlistamaður Akureyrar, Steps Dancecenter, Mahaut Matharel, Karólína Orradóttir, Jónsi og Erna Hrönn, DSA Listdansskóli Akureyrar og Hvolpasveitin.

Á MA-túni og víðar verður afþreying frá klukkan 13.30 til 17, meðal annars hoppukastalar, andlitsmálning, frisbígolf, götukörfubolti, pokavarp, skotfimi með laserbyssum, skátatívolí og matarvagnar.

Sigling með Húna II verður klukkan 16.30 frá Fiskihöfninni.

Ísafjörður

Á Ísafirði hefst dagurinn með tónlistarmessu í Ísafjarðarkirkju klukkan 11. Klukkan 12 verður grímusmiðja Kómedíuleikhússins í Edinborgarhúsinu.

Skrúðganga leggur af stað frá Silfurtorgi upp á Eyrartún klukkan 13.15. Þar verður hátíðardagskrá frá klukkan 13.30 til 16 með lúðrasveit, hátíðarræðu, hátíðarkór, ávarpi fjallkonu, hoppuköstulum, andlitsmálun, karamelluregni, hestum og sölutjöldum.

Sérstök hátíð verður í Safnahúsinu á Ísafirði, sem fagnar 100 ára afmæli sínu. Opið hús verður frá klukkan 14.30 til 17, þar sem gestum verður boðið upp á afmælisköku og kaffi. Þar gefst einnig tækifæri til að skoða húsið eftir endurbætur, þar á meðal barnadeild bókasafnsins sem opnar þennan dag.

Einnig verður kökuhlaðborð á Logni, sýningaropnun í Gallerí Úthverfu, pikknikk-tónleikar í Blómagarðinum og opnunarhátíð tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið um kvöldið.

FlaggaðBúast má við því að sjá íslenska fána dregna að húni um allt land í dag.

Múlaþing

Í Múlaþingi verður dagskrá á Egilsstöðum, Seyðisfirði, Djúpavogi og Borgarfirði.

Á Egilsstöðum hefst dagurinn með blöðrusölu við Vilhjálmsvöll klukkan 10 og fjölskyldustund í Egilsstaðakirkju klukkan 10.30. Skrúðganga fer frá kirkjunni klukkan 11 og henni lýkur við fimleikahúsið með tónlistaratriði og fimleikasýningu.

Í Tjarnargarðinum verður afþreying fyrir börn frá klukkan 11.30, meðal annars hoppukastalar, andlitsmálun, krakkazumba og sjoppa. Hátíðardagskrá hefst klukkan 14 með hátíðarræðu, tónlist, fjallkonu, viðurkenningu Rótarý, atriði úr Minningaleikhúsinu og verðlaunaafhendingu í skúlptúrasamkeppni barna.

Á Seyðisfirði verður blómsveigur lagður að leiði Björns í Firði klukkan 11. Hátíðardagskrá verður við Seyðisfjarðarkirkju klukkan 13 með hátíðarmessu, ávarpi fjallkonu, tónlistaratriði, hátíðarávarpi og hvatningarverðlaunum Hugins. Þá verður 17. júní hlaup Hugins fyrir börn 12 ára og yngri klukkan 12.

Á Djúpavogi verður andlitsmálun í Gömlu kirkjunni klukkan 13, skrúðganga klukkan 14 og hátíðardagskrá í Blá klukkan 14.30. Þar verða fánahylling, fjallkona, skemmtiatriði, kaffi, grillveisla, hoppukastalar og fjör. Vatnsrennibraut verður í Neistabrekkunni klukkan 15.30 ef veður leyfir.

Á Borgarfirði verður andlitsmálun á Heiðinni klukkan 12, skrúðganga klukkan 13, leikir og sprell á fótboltavellinum klukkan 14 og pylsu- og vöfflupartí við Fjarðarborg klukkan 15.30.

Selfoss

Á Selfossi hefst dagurinn með morgunjóga í Kappahl-höllinni klukkan 9. Fánar verða dregnir að húni við Ráðhús Árborgar klukkan 10 og á sama tíma býður Hestamannafélagið Sleipnir íbúum á hestbak í Sleipnishöllinni.

Selfossrútan verður í áætlunarakstri frá klukkan 10 til 16. Við Björgunarmiðstöðina verður tækjasýning frá klukkan 10.30 til 12 og Bjössi brunabangsi verður á staðnum.

Skrúðganga leggur af stað frá Selfosskirkju klukkan 13.15 og fer í Sigtúnsgarð. Þar verða hoppukastalar og loftboltar opnir klukkan 13.30. Andlitsmálun, 17. júní sjoppa og kaffisala verða frá klukkan 13.30 til 16.

Hátíðardagskrá hefst í Sigtúnsgarði klukkan 13.45 með ávarpi fjallkonu og hátíðarræðu. Fjölskylduhátíð hefst klukkan 14. Þar koma meðal annars fram Jón Jónsson, Klara Einars, Karíus og Baktus, Eyrnaslapi og Gríslingur og ungt tónlistarfólk úr Árborg.

Um kvöldið verður boðið upp á siglingu á Ölfusá frá klukkan 19.30 til 21.30. Kvöldvaka eldri borgara verður í Mörkinni frá klukkan 20 til 21.30, með tónlist, gamanmálum, fjallkonu og fjöldasöng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Halldór Jörgen Olesen
2
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.
Hélt upp á afmælið með blóðugum bardaga í Hvíta húsinu
6
Erlent

Hélt upp á af­mæl­ið með blóð­ug­um bar­daga í Hvíta hús­inu

„Michelle Obama er karl­mað­ur, er það ekki rétt, Am­er­íka?“ öskr­aði bar­dagakappi í míkró­fón­inn þar sem hann barð­ist fyr­ir fram­an for­set­ann. Don­ald Trump hélt upp á átt­ræð­is af­mæl­ið með því að setja upp UFC-bar­daga í Hvíta hús­inu. Að­dá­andi sagði við­burð­inn „tákn­ræn­an og lýs­andi fyr­ir banda­ríska menn­ingu“ á með­an aðr­ir sögðu hann smekk­lausa nið­ur­læg­ingu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
2
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár