Hélt upp á afmælið með blóðugum bardaga í Hvíta húsinu

„Michelle Obama er karl­maður, er það ekki rétt, Ameríka?“ öskr­aði bar­daga­kappi í míkró­fón­inn þar sem hann barð­ist fyrir framan for­set­ann. Donald Trump hélt upp á átt­ræðis afmælið með því að setja upp UFC-bar­daga í Hvíta hús­inu. Aðdáandi sagði við­burð­inn „tákn­rænan og lýsandi fyrir banda­ríska menn­ingu“ á meðan aðrir sögðu hann smekklausa nið­ur­læg­ingu.

Hélt upp á afmælið með blóðugum bardaga í Hvíta húsinu

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hélt upp á 80 ára afmælið sitt í gær­kvöldi með harð­neskju­legri sýn­ingu á póli­tískri karl­mennsku, þegar hann breytti gras­flöt­inni við Hvíta húsið í vett­vang fyrir blóð­uga bar­daga.

Á for­dæma­lausum atburði í hinu virðu­lega höf­uð­setri banda­rísks lýð­ræðis sat Trump með þús­undum aðdá­enda sem fögn­uðu á meðan kepp­endur úr Ultimate Fighting Chamionship (UFC) börðu hvern annan.

Bar­daga­kapp­arnir í aðal­bar­daga kvölds­ins gengu út af skrif­stofu for­set­ans, þar sem Trump hafði aðeins nokkrum klukku­stundum áður inn­siglað lang­þráðan frið­ar­samn­ing við Íran, og héldu þaðan að bar­daga­búr­inu.

Banda­ríski bar­daga­kapp­inn Justin Gaethje rot­aði hinn spænsk-georgíska Ilia Topuria og tryggði sér þar með létt­vigt­ar­tit­il­inn í aðal­bar­dag­anum. Gaethje var úrskurð­aður sig­ur­veg­ari eftir að and­lit Topuria var orðið svo illa leikið að hann gat ekki haldið áfram.

Að bar­dag­anum loknum gengu Trump og for­seta­frúin Melania inn í búrið sem var alsett blóð­slettum til að óska Gaethje til ham­ingju, sem óskaði for­set­anum …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þegar trúður flytur inn í höll þá verður hann ekki konungur heldur breytist höllin í Sirkus.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár