Hélt upp á afmælið með blóðugum bardaga í Hvíta húsinu

„Michelle Obama er karlmaður, er það ekki rétt, Ameríka?“ öskraði bardaga­kappi í míkró­fóninn þar sem hann barðist fyrir framan forsetann. Donald Trump hélt upp á áttræðis afmælið með því að setja upp UFC-bardaga í Hvíta húsinu. Aðdáandi sagði viðburðinn „táknrænan og lýsandi fyrir bandaríska menningu“ á meðan aðrir sögðu hann smekk­lausa niður­lægingu.

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, hélt upp á 80 ára afmælið sitt í gærkvöldi með harðneskjulegri sýningu á pólitískri karl­mennsku, þegar hann breytti gras­flötinni við Hvíta húsið í vettvang fyrir blóðuga bardaga.

Á fordæma­lausum atburði í hinu virðulega höfuð­setri bandarísks lýðræðis sat Trump með þúsundum aðdáenda sem fögnuðu á meðan keppendur úr Ultimate Fighting Chamionship (UFC) börðu hvern annan.

Bardaga­kapparnir í aðal­bardaga kvöldsins gengu út af skrif­stofu forsetans, þar sem Trump hafði aðeins nokkrum klukku­stundum áður innsiglað lang­þráðan friðar­samning við Íran, og héldu þaðan að bardaga­búrinu.

Bandaríski bardaga­kappinn Justin Gaethje rotaði hinn spænsk-georgíska Ilia Topuria og tryggði sér þar með léttvigtar­titilinn í aðal­bardaganum. Gaethje var úrskurðaður sigurvegari eftir að andlit Topuria var orðið svo illa leikið að hann gat ekki haldið áfram.

Að bardaganum loknum gengu Trump og forseta­frúin Melania inn í búrið sem var alsett blóð­slettum til að óska Gaethje til hamingju, sem óskaði forsetanum …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þegar trúður flytur inn í höll þá verður hann ekki konungur heldur breytist höllin í Sirkus.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár