Umhverfisráðherra: „Ég dauðsá eftir þessu molbúalega svari“

Umhverf­is­ráð­herra sér eftir „mol­búa­legu“ svari um tengsl sín við nátt­úr­una, en spyr á móti hvort tengsl mann­eskj­unnar við íslenska nátt­úru sé ekki alls­konar.

Umhverfisráðherra: „Ég dauðsá eftir þessu molbúalega svari“
Jóhann Páll Jóhans­son Umhverfis- og orku­mála­ráð­herra seg­ist sjá eftir svari sínu og fannst það ekki sæm­andi umhverf­is­ráð­herra. Mynd: Golli

Jóhann Páll Jóhanns­son, umhverfis- og orku­mála­ráð­herra, seg­ist sjá eftir „mol­búa­legu“ svari sínu þegar hann var inntur eftir teng­ingum sínum við nátt­úr­una í þætt­inum Græna borðið. Það voru gam­al­kunnu fjöl­miðla­menn­irnir Jón Kaldal og Páll Ásgeir Ásgeirs­son sem inntu ráð­herr­ann eftir svörum í þætt­inum og upp­skáru ein­kenni­lega, eins og Jóhann Páll hefur nú lýst á Facebook. Jóhann nefndi nán­ast bak­garð­inn heima, eða Laug­arás­inn, sem er þó óþarfi að gera lítið úr, enda frið­lýstur sem nátt­úru­vætti árið 1982. Eins nefndi hann sum­ar­hús afa síns og ömmu á Suð­ur­land­inu, sem einmitt ber sama nafn, eða Laugarás. Ráð­herr­ann segir spurn­ing­una um tengsl við nátt­úr­una hafa komið sér í opna skjöldu.

„Í byrjun við­tals­ins var ég spurður um mína helstu nátt­úru­upp­lifun sem barn. Spurn­ingin setti mig svo­lítið út af lag­inu og svarið hefur vakið nokkra kátínu …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HH
    Hjörtur Herbertsson skrifaði
    Ég sé bara ekkert athugavert við þetta svar hjá honum, upplifun í sumarbústað hjá afa hans og ömmu hefur verið mikil tengsl þar við náttúruna.
    -2
  • Hulda Ólafsdóttir skrifaði
    Ég sé nú ekkert athugavert vert við að helstu tengsl okkar við náttúruna séu í nærumhverfinu hvort sem um er að ræða ráðherra eða sauðsvartan almúgann. Ekki veit ég neinn stað dásamlegri en garðinn minn.
    0
  • TF
    Tryggvi Felixson skrifaði
    Mikilvægt að ráðherra náttúruverndar hafa innsýn og þekki af eigin reynslu verðmætustu svæðin sem Ísland hefur falið okkur að annast og vernda fyrir komandi kynslóðir. Gott að ráðherra virðist átta sig á því.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár