„Við erum til og við erum mörg“

Tími inn­flytj­enda­bók­mennta á Íslandi er runn­inn upp, segir rit­stjóri bók­ar­innar Pólífónía af erlendum upp­runa, sem er ljóða­úr­val fimmtán skálda frá tólf löndum sem öll búa á Íslandi. Rit­stjór­inn segir að bókin ryðji braut­ina fyrir fleiri bækur skrif­aðar af fólki af erlendum upp­runa sem býr á Íslandi.

Bók

Pólífónía af erlendum upp­runa

Höfundur ýmsir
Una útgáfuhús
160 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Við erum til og við erum mörg. Það er eft­ir­spurn eftir okkar skáld­skap og hér er svarið. Þetta er eins konar fæð­ing inn­flytj­enda­bók­mennta á Íslandi og ég vona að henni fylgi margar bækur, í margar kyn­slóðir, um ókomna tíð,“ segir Natasha Stolyarova, rit­stjóri og einn af höf­undum bók­ar­innar Pólífónía af erlendum upp­runa í for­mála bók­ar­innar. Natasha seg­ist hafa fengið hug­mynd­ina þegar hún las bók eftir Yahya Hassan sem er Dani af palest­ínskum ættum. „Ég fatt­aði að ég hafði aldrei heyrt um inn­flytj­enda­bók­menntir á Íslandi og því vant­aði útlenskar raddir hér. Þess vegna lang­aði mig að búa til svona bók,“ segir hún. Í bók­inni eru öll ljóðin á móð­ur­máli höf­und­anna og á íslensku. „Það eru ljóð á ensku, dönsku, portú­gölsku og finnsku og líka á tungu­máli sem Elías Knörr bjó til en eng­inn getur lesið það nema hann,“ segir Natasha Stolyarova. Elías Knörr, eða Knörr eins og hann er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2021

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hugleiðslu
ViðtalAllir fuglar fljúga í ljósið

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hug­leiðslu

Í bók­inni Allir fuglar fljúga í ljósið riðl­ast til­vera ráfar­ans Bjartar og lífs­saga hennar brýst fram. Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur og skap­ari sög­unnar segir að þegar hún ljúki við að skrifa bók líði henni oft eins og hún sé að ranka við sér eftir langa og djúpa hug­leiðslu. „Þetta er eins og að hafa farið mjög djúpt inn í draum nema núna er draum­ur­inn kom­inn á prent og fólk er að fara að lesa hann,“ segir Auður.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár