Hagnaðist um 272 milljónir á að selja orkusölumiðlun inn í almenningshlutafélag

Eign­ar­halds­fé­lag Magnúsar Júl­í­us­sonar, eins stofn­anda og fram­kvæmda­stjóra Íslenskrar Orku­miðl­unar, hagn­að­ist vel í fyrra þegar fyr­ir­tækið var selt til almenn­ings­hluta­fé­lags­ins Festis. Félag Bjarna Ármanns­sonar hagn­að­ist einnig vel en for­stjóri Festis, Eggert Þór Krist­ó­fers­son, er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri félags Bjarna. Enn liggur ekki fyrir á hverju kaup­verðið byggði.

Hagnaðist um 272 milljónir á að selja orkusölumiðlun inn í almenningshlutafélag

Eign­ar­halds­fé­lag Magnúsar Júl­í­us­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra orku­sölu­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar orku­miðl­unar og fyrr­ver­andi hlut­hafa í félag­inu, hagn­að­ist um 272 millj­ónir króna í fyrra. Þá seldi félag hans, Betelgás ehf., hluta­bréf í orku­sölu­fyr­ir­tæk­inu til almenn­ings­hluta­fé­lags­ins Festis, sem er í meiri­hluta­eigu líf­eyr­is­sjóða.  Kaup­verðið var að hluta til greitt með reiðufé og að hluta til með hluta­bréfum í Festi, sem meðal ann­ars á N1, Krónuna, Elko og fleiri félög.  Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Betelgás sem nýlega var skilað til árs­reikn­inga­skrár Rík­is­skatt­stjóra. 

Á einu ári fóru eignir félags Magnúsar fór því að vera bók­færðar á tæp­lega 16 millj­ónir króna og upp í tæp­lega 293 millj­ónir króna. Félag Magnúsar hefur svo selt hluta­bréf í Festi á þessu ári og þannig inn­leyst enn meiri hagnað vegna við­skipt­anna.

Hlut­hafar Íslenskrar orku­miðl­unar voru, auk félags Magnúsar: fjár­fest­ing­ar­fé­lag Bjarna Ármanns­sonar, for­stjóra Icelandic Seafood, FISK-Seafood, útgerð­ar­fé­lag Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og Ísfélag Vest­manna­eyja. 

Fyrirtæki í sjávarútvegi stórir viðskiptavinir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PG
    Palli Garðarsson skrifaði
    Það hljómar aldrei vel þegar lífeyrissjóðir og sjálfstæðismenn koma fyrir í sömu setningu.
    0
  • Lárus Andri Jónsson skrifaði
    Samsafn af drullusokkum
    0
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Svona vinnubrögð fá endalaus tækifæri hjá stjórnvöldum, þetta er siðlaust en löglegt.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Viðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Saga N1 Rafmagns: Viðskiptavild í boði lífeyrissjóða og ofrukkanir gegn almenningi
ViðtalViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Saga N1 Rafmagns: Við­skipta­vild í boði líf­eyr­is­sjóða og ofrukk­anir gegn almenn­ingi

Sagan af Íslenskri orku­miðlun/N1 Rafmagni er saga sem snýst í grunn­inn um það hvernig almenn­ings­hluta­fé­lag í eigu líf­eyr­is­sjóða greiddi fjár­festum mörg hund­ruð millj­ónir króna fyrir óefn­is­legar eignir, við­skipta­vild lít­ils raf­orku­fyr­ir­tækis. Þetta fyr­ir­tæki hóf svo að ofrukka neyt­endur fyrir raf­magn í gegnum þetta almenn­ings­hluta­fé­lag og er nú til rann­sóknar vegna þess. For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Eggert Þór Krist­ó­fers­son, svarar hér spurn­ingum um við­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í við­tali.
Festi segir N1 Rafmagn ekki hafa ofrukkað neytendur og endurgreiðir bara tvo mánuði
FréttirViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Festi segir N1 Rafmagn ekki hafa ofrukkað neyt­endur og end­ur­greiðir bara tvo mán­uði

Almenn­ings­hluta­fé­lagið Festi, sem meðal ann­ars á olíu­fé­lagið N1 og N1 Rafmagn, seg­ist ekki ætla að end­ur­greiða við­skipta­vinum sínum sem komu í gegnum þrauta­vara­leið­ina nema fyrir tvo síð­ustu mán­uði. N1 Rafmagn baðst afsök­unar á því í síð­ustu viku að hafa rukkað þessa við­skipta­vini um hærra verð en lægsta birta verð fyr­ir­tæk­is­ins. N1 Rafmagn telur sig hins vegar ekki hafa stundað ofrukk­anir.
N1 Rafmagn baðst loks afsökunar á ofrukkunum í þriðju atrennu
FréttirViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

N1 Rafmagn baðst loks afsök­unar á ofrukk­unum í þriðju atrennu

N1 Rafmagn rétt­lætti ofrukk­anir á raf­magni til við­skipta­vina sinna tví­vegis áður en fyr­ir­tækið baðst afsök­unar. Fyr­ir­tækið hefur ekki útskýrt af hverju það ætlar ekki að end­ur­greiða við­skipta­vinum sínum mis­mun­inn á inn­heimtu verði raf­magns og aug­lýstu frá sumr­inu 2020 þegar það varð sölu­að­ili til þrauta­vara.
Orkustofnun rannsakar viðskiptahætti N1 Rafmagns
FréttirViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Orku­stofnun rann­sakar við­skipta­hætti N1 Rafmagns

Rík­is­stofn­unin Orku­stofnun hefur hafið rann­sókn á því hvort fyr­ir­tæk­inu Íslenskri orku­miðlun/N1 Rafmagni sé heim­ilt að rukka suma við­skipta­vini fyr­ir­tæk­is­ins eins og gert hefur verið. Um er að ræða við­skipta­vini sem komið hafa til fyr­ir­tæk­is­ins í gegnum hina svoköll­uðu þrauta­vara­leið. Rann­sóknin er byggð á kvörtun sem barst þann 16. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár