Fréttamál

Viðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Greinar

Saga N1 Rafmagns: Viðskiptavild í boði lífeyrissjóða og ofrukkanir gegn almenningi
ViðtalViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Saga N1 Rafmagns: Við­skipta­vild í boði líf­eyr­is­sjóða og ofrukk­anir gegn almenn­ingi

Sagan af Íslenskri orku­miðlun/N1 Rafmagni er saga sem snýst í grunn­inn um það hvernig almenn­ings­hluta­fé­lag í eigu líf­eyr­is­sjóða greiddi fjár­festum mörg hund­ruð millj­ónir króna fyrir óefn­is­legar eignir, við­skipta­vild lít­ils raf­orku­fyr­ir­tækis. Þetta fyr­ir­tæki hóf svo að ofrukka neyt­endur fyrir raf­magn í gegnum þetta almenn­ings­hluta­fé­lag og er nú til rann­sóknar vegna þess. For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Eggert Þór Krist­ó­fers­son, svarar hér spurn­ingum um við­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í við­tali.
Festi segir N1 Rafmagn ekki hafa ofrukkað neytendur og endurgreiðir bara tvo mánuði
FréttirViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Festi segir N1 Rafmagn ekki hafa ofrukkað neyt­endur og end­ur­greiðir bara tvo mán­uði

Almenn­ings­hluta­fé­lagið Festi, sem meðal ann­ars á olíu­fé­lagið N1 og N1 Rafmagn, seg­ist ekki ætla að end­ur­greiða við­skipta­vinum sínum sem komu í gegnum þrauta­vara­leið­ina nema fyrir tvo síð­ustu mán­uði. N1 Rafmagn baðst afsök­unar á því í síð­ustu viku að hafa rukkað þessa við­skipta­vini um hærra verð en lægsta birta verð fyr­ir­tæk­is­ins. N1 Rafmagn telur sig hins vegar ekki hafa stundað ofrukk­anir.
N1 Rafmagn baðst loks afsökunar á ofrukkunum í þriðju atrennu
FréttirViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

N1 Rafmagn baðst loks afsök­unar á ofrukk­unum í þriðju atrennu

N1 Rafmagn rétt­lætti ofrukk­anir á raf­magni til við­skipta­vina sinna tví­vegis áður en fyr­ir­tækið baðst afsök­unar. Fyr­ir­tækið hefur ekki útskýrt af hverju það ætlar ekki að end­ur­greiða við­skipta­vinum sínum mis­mun­inn á inn­heimtu verði raf­magns og aug­lýstu frá sumr­inu 2020 þegar það varð sölu­að­ili til þrauta­vara.
Orkustofnun rannsakar viðskiptahætti N1 Rafmagns
FréttirViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Orku­stofnun rann­sakar við­skipta­hætti N1 Rafmagns

Rík­is­stofn­unin Orku­stofnun hefur hafið rann­sókn á því hvort fyr­ir­tæk­inu Íslenskri orku­miðlun/N1 Rafmagni sé heim­ilt að rukka suma við­skipta­vini fyr­ir­tæk­is­ins eins og gert hefur verið. Um er að ræða við­skipta­vini sem komið hafa til fyr­ir­tæk­is­ins í gegnum hina svoköll­uðu þrauta­vara­leið. Rann­sóknin er byggð á kvörtun sem barst þann 16. des­em­ber síð­ast­lið­inn.
Íslensk orkumiðlun hefur selt þúsundum neytenda rafmagn á gölluðum forsendum
FréttirViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Íslensk orku­miðlun hefur selt þús­undum neyt­enda raf­magn á göll­uðum for­sendum

Nýtt raf­orku­sölu­kerfi á Íslandi felur meðal ann­ars í sér hug­mynd­ina um sölu­að­ila til þrauta­vara. Við­skipta­vinir fara sjálf­krafa í við­skipti við það raf­orku­fyr­ir­tæki sem er með lægsta kynnta verðið. Íslensk orku­miðlun hefur verið með lægsta kynnta verðið hingað til en rukkar þrauta­vara­við­skipti sína hins vegar fyrir hærra verð. Orku­stofnun á að hafa eft­ir­lit með kerf­inu um orku­sala til þrauta­vara.
Hagnaðist um 272 milljónir á að selja orkusölumiðlun inn í almenningshlutafélag
FréttirViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Hagn­að­ist um 272 millj­ónir á að selja orku­sölu­miðlun inn í almenn­ings­hluta­fé­lag

Eign­ar­halds­fé­lag Magnúsar Júl­í­us­sonar, eins stofn­anda og fram­kvæmda­stjóra Íslenskrar Orku­miðl­unar, hagn­að­ist vel í fyrra þegar fyr­ir­tækið var selt til almenn­ings­hluta­fé­lags­ins Festis. Félag Bjarna Ármanns­sonar hagn­að­ist einnig vel en for­stjóri Festis, Eggert Þór Krist­ó­fers­son, er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri félags Bjarna. Enn liggur ekki fyrir á hverju kaup­verðið byggði.

Mest lesið undanfarið ár