Hagnaðist um 272 milljónir á að selja orkusölumiðlun inn í almenningshlutafélag

Eignarhalds­félag Magnúsar Júlíussonar, eins stofnanda og framkvæmda­stjóra Íslenskrar Orku­miðlunar, hagnaðist vel í fyrra þegar fyrir­tækið var selt til almennings­hluta­félagsins Festis. Félag Bjarna Ármanns­sonar hagnaðist einnig vel en forstjóri Festis, Eggert Þór Krist­ófersson, er fyrr­verandi framkvæmda­stjóri félags Bjarna. Enn liggur ekki fyrir á hverju kaup­verðið byggði.

Eignarhalds­félag Magnúsar Júlíussonar, fyrr­verandi framkvæmda­stjóra orku­sölu­fyrir­tækisins Íslenskrar orku­miðlunar og fyrr­verandi hluthafa í félaginu, hagnaðist um 272 milljónir króna í fyrra. Þá seldi félag hans, Betelgás ehf., hlutabréf í orku­sölu­fyrirtækinu til almennings­hluta­félagsins Festis, sem er í meirihluta­eigu lífeyris­sjóða. Kaup­verðið var að hluta til greitt með reiðufé og að hluta til með hluta­bréfum í Festi, sem meðal annars á N1, Krónuna, Elko og fleiri félög. Þetta kemur fram í ársreikningi Betelgás sem nýlega var skilað til ársreikninga­skrár Ríkis­skattstjóra. 

Á einu ári fóru eignir félags Magnúsar fór því að vera bókfærðar á tæplega 16 milljónir króna og upp í tæplega 293 milljónir króna. Félag Magnúsar hefur svo selt hlutabréf í Festi á þessu ári og þannig innleyst enn meiri hagnað vegna viðskiptanna.

Hluthafar Íslenskrar orku­miðlunar voru, auk félags Magnúsar: fjár­festingar­félag Bjarna Ármanns­sonar, forstjóra Icelandic Seafood, FISK-Seafood, útgerðar­félag Kaup­félags Skagfirðinga og Ísfélag Vestmanna­eyja. 

Fyrirtæki í sjávarútvegi stórir viðskiptavinir

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PG
    Palli Garðarsson skrifaði
    Það hljómar aldrei vel þegar lífeyrissjóðir og sjálfstæðismenn koma fyrir í sömu setningu.
    0
  • Lárus Andri Jónsson skrifaði
    Samsafn af drullusokkum
    0
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Svona vinnubrögð fá endalaus tækifæri hjá stjórnvöldum, þetta er siðlaust en löglegt.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Viðskiptin með Íslenska orkumiðlun

ViðtalViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Saga N1 Rafmagns: Viðskipta­vild í boði lífeyris­sjóða og ofrukkanir gegn almenningi

Sagan af Íslenskri orku­miðlun/N1 Rafmagni er saga sem snýst í grunninn um það hvernig almennings­hlutafélag í eigu lífeyris­sjóða greiddi fjár­festum mörg hundruð milljónir króna fyrir óefnislegar eignir, viðskipta­vild lítils raforku­fyrirtækis. Þetta fyrirtæki hóf svo að ofrukka neytendur fyrir rafmagn í gegnum þetta almennings­hlutafélag og er nú til rann­sóknar vegna þess. Forstjóri fyrir­tækisins, Eggert Þór Krist­ófersson, svarar hér spurningum um viðskipti fyrir­tækisins í viðtali.

11 mín. lestur

FréttirViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Festi segir N1 Rafmagn ekki hafa ofrukkað neytendur og endur­greiðir bara tvo mánuði

Almennings­hluta­félagið Festi, sem meðal annars á olíu­félagið N1 og N1 Rafmagn, segist ekki ætla að endur­greiða viðskipta­vinum sínum sem komu í gegnum þrautavara­leiðina nema fyrir tvo síðustu mánuði. N1 Rafmagn baðst afsökunar á því í síðustu viku að hafa rukkað þessa viðskipta­vini um hærra verð en lægsta birta verð fyrir­tækisins. N1 Rafmagn telur sig hins vegar ekki hafa stundað ofrukkanir.
FréttirViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Orku­stofnun rannsakar viðskipta­hætti N1 Rafmagns

Ríkis­stofnunin Orku­stofnun hefur hafið rannsókn á því hvort fyrir­tækinu Íslenskri orku­miðlun/N1 Rafmagni sé heimilt að rukka suma viðskipta­vini fyrir­tækisins eins og gert hefur verið. Um er að ræða viðskipta­vini sem komið hafa til fyrir­tækisins í gegnum hina svokölluðu þrautavara­leið. Rann­sóknin er byggð á kvörtun sem barst þann 16. desember síðastliðinn.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár