Þingmaður Samfylkingarinnar vill fá svör frá ráðherra um ofrukkanir á sölu rafmagns

Einn af þing­mönnum Sam­fylk­ing­ar­innar, Jóhann Páll Jóhanns­son, hefur sent fyr­ir­spurn í 16. liðum til Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, ráð­herra orku­mála. Við­skipta­hættir N1 Rafmagns hafa vakið mikla athygli síð­ustu vik­urnar.

Þingmaður Samfylkingarinnar vill fá svör frá ráðherra um ofrukkanir á sölu rafmagns
Umdeild við­skipti Almenn­ings­hluta­fé­lagið Festi, sem á N1, keypti Íslenska orku­miðlun árið 2020 í umdeildum við­skiptum vegna þess að stór hluti verðs­ins var við­skipta­vild. Nafni félags­ins var svo breytt í N1 Rafmagn í lok síð­asta árs. Eggert Þór Krist­ó­fers­son er for­stjóri Festis og Magnús Júl­í­us­son var fram­kvæmda­stjóri og einn af hlut­höfum Íslenskrar orku­miðl­unar.

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hefur sent fyr­ir­spurn til orku­mála­ráð­herra um fyr­ir­komu­lag við sölu á raf­magni sem kennt er við sölu­að­ila til þrauta­vara. Þetta kemur fram á vef Alþingis en þing­mað­ur­inn Jóhann Páll Jóhanns­son úr Sam­fylk­ing­unni beinir þar sextán spurn­ingum til ráð­herr­ans, Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, og vill fá skrif­leg svör. 

Stundin hefur síð­ustu vik­urnar fjallað um við­skipti N1 Rafmagns, áður Íslenskrar orku­miðl­unar, við við­skipta­vini sem komið hafa til fyr­ir­tæk­is­ins í gegnum þessa þrauta­vara­leið á þeim grund­velli að N1 Rafmagn selji ódýr­ustu raf­ork­una. N1 Rafmagn hefur hins vegar selt umræddum við­skipta­vinum raf­magnið á allt að 75 pró­sent hærra verði en lægsta birta verði sínu.

Þrauta­vara­leiðin gengur út á það að ef raf­magns­not­andi velur sér ekki sölu­fyr­ir­tæki á raf­magni þá verður við­kom­andi settur í við­skipti hjá því fyr­ir­tæki sem er með lægsta verðið. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • BH
    Bjarki Hilmarsson skrifaði
    "Það vekur alveg merkilega litla athygli að Magnús Júlíusson sem stýrði Íslenskri orkumiðlun (nú er N1 orka) sem svindlaði á neytendum og misnotaði reglur um orkusölu til þrautavara er einmitt nýráðinn aðstoðarmaður Áslaugar Örnu. Sami Magnús er einmitt fyrrverandi tengdasonur Bjarna og var skipaður í starfshóp um Orkustefnu til 2050 af fjármálaráðherra. Já og svo var hann auðvitað formaður SUS. merkilegt hvernig tekist hefur að horfa algjörlega framhjá því að arkitektinn er aðstoðarmaður ráðherra."
    https://www.facebook.com/photo/?fbid=10158174950671965&set=a.28553641964
    0
  • Lárus Andri Jónsson skrifaði
    Áður en Festi fékk stjórnvöld til þessarar nauðungar,kallað þrautavaraleið,orð sem fáir skilja,var það þannig ef notenda skypti voru að íbúðum,var orkusali sami,nemu umannað væri beðið,en Engeyjingar sem þarna standa að baki hafa fengið kúsk sinn á þingi,BB til að koma þessari lagasetningu á
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    N1 er ekki traustvekjandi fyrirtæki
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Viðskiptin með Íslenska orkumiðlun

ViðtalViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Saga N1 Rafmagns: Við­skipta­vild í boði líf­eyr­is­sjóða og ofrukk­anir gegn almenn­ingi

Sagan af Íslenskri orku­miðlun/N1 Rafmagni er saga sem snýst í grunn­inn um það hvernig almenn­ings­hluta­fé­lag í eigu líf­eyr­is­sjóða greiddi fjár­festum mörg hund­ruð millj­ónir króna fyrir óefn­is­legar eignir, við­skipta­vild lít­ils raf­orku­fyr­ir­tækis. Þetta fyr­ir­tæki hóf svo að ofrukka neyt­endur fyrir raf­magn í gegnum þetta almenn­ings­hluta­fé­lag og er nú til rann­sóknar vegna þess. For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Eggert Þór Krist­ó­fers­son, svarar hér spurn­ingum um við­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í við­tali.

11 mín. lestur

FréttirViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Festi segir N1 Rafmagn ekki hafa ofrukkað neyt­endur og end­ur­greiðir bara tvo mán­uði

Almenn­ings­hluta­fé­lagið Festi, sem meðal ann­ars á olíu­fé­lagið N1 og N1 Rafmagn, seg­ist ekki ætla að end­ur­greiða við­skipta­vinum sínum sem komu í gegnum þrauta­vara­leið­ina nema fyrir tvo síð­ustu mán­uði. N1 Rafmagn baðst afsök­unar á því í síð­ustu viku að hafa rukkað þessa við­skipta­vini um hærra verð en lægsta birta verð fyr­ir­tæk­is­ins. N1 Rafmagn telur sig hins vegar ekki hafa stundað ofrukk­anir.
FréttirViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

N1 Rafmagn baðst loks afsök­unar á ofrukk­unum í þriðju atrennu

N1 Rafmagn rétt­lætti ofrukk­anir á raf­magni til við­skipta­vina sinna tví­vegis áður en fyr­ir­tækið baðst afsök­unar. Fyr­ir­tækið hefur ekki útskýrt af hverju það ætlar ekki að end­ur­greiða við­skipta­vinum sínum mis­mun­inn á inn­heimtu verði raf­magns og aug­lýstu frá sumr­inu 2020 þegar það varð sölu­að­ili til þrauta­vara.
FréttirViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Orku­stofnun rann­sakar við­skipta­hætti N1 Rafmagns

Rík­is­stofn­unin Orku­stofnun hefur hafið rann­sókn á því hvort fyr­ir­tæk­inu Íslenskri orku­miðlun/N1 Rafmagni sé heim­ilt að rukka suma við­skipta­vini fyr­ir­tæk­is­ins eins og gert hefur verið. Um er að ræða við­skipta­vini sem komið hafa til fyr­ir­tæk­is­ins í gegnum hina svoköll­uðu þrauta­vara­leið. Rann­sóknin er byggð á kvörtun sem barst þann 16. des­em­ber síð­ast­lið­inn.
FréttirViðskiptin með Íslenska orkumiðlun

Íslensk orku­miðlun hefur selt þús­undum neyt­enda raf­magn á göll­uðum for­sendum

Nýtt raf­orku­sölu­kerfi á Íslandi felur meðal ann­ars í sér hug­mynd­ina um sölu­að­ila til þrauta­vara. Við­skipta­vinir fara sjálf­krafa í við­skipti við það raf­orku­fyr­ir­tæki sem er með lægsta kynnta verðið. Íslensk orku­miðlun hefur verið með lægsta kynnta verðið hingað til en rukkar þrauta­vara­við­skipti sína hins vegar fyrir hærra verð. Orku­stofnun á að hafa eft­ir­lit með kerf­inu um orku­sala til þrauta­vara.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár