Ætla að ákæra Samherjamenn um leið og þeir verða handsamaðir

Íslend­ingar sem störf­uðu í Namibíu fyrir Samherja og áttu aðkomu að mútu­greiðslum til þar­lendra áhrifa­manna eru ekki sloppnir við ákæru. Sak­sókn­ari þar í landi segir ástæðu þess að nöfn þeirra sé ekki á nýju ákæru­skjali í mál­inu sé sú stað­reynd að ekki hafi tek­ist að færa þá fyrir dóm.

Ætla að ákæra Samherjamenn um leið og þeir verða handsamaðir
Ekki sloppnir við mögu­lega ákæru Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu segir að þeir Aðal­steinn Helgason, Ingvar Júl­í­us­son og Egill Helgi Árnason séu ekki sloppnir við ákæru í Sam­herj­a­mál­inu þó þeir séu ekki ákærðir nú.

Enn stendur til að ákæra Íslend­inga í tengslum við Namib­íu­málið svo­kall­aða. Í nýlegu ákæru­skjali sem lagt var fyrir dóm í Namibíu eru engin nöfn Íslend­inga, líkt og í fyrri gögnum. Sak­sókn­ar­inn í mál­inu, Martha Imwala, segir í skrif­legu svari til Stund­ar­innar að það breyti engu um fyr­ir­ætl­anir sínar að ákæra þá Íslend­inga sem komu beint að mútu­greiðslum sem félög tengd Samherja eru sökuð um að hafa greitt áhrifa­mönnum þar í landi. Íslend­ing­arnir hafi aftur á móti ekki brugð­ist við kröfum um að mæta fyrir dóm og því hafi ekki verið hægt að gefa form­lega út ákæruna á hendur þeim. 

Tíu namibískir menn hafa verið ákærðir þar í landi fyrir að taka við mútu­greiðslum frá Sam­herj­a­fé­lögum á Kýpur og í Namibíu. Nöfn þeirra komu fram í þessu nýja ákæru­skjali sem lagt var fyrir dóm­stóla þar syðra eftir að mála­rekstur þar var sam­ein­aður í eitt dóms­mál. 

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Í þessu tilfelli væri rík ástæða til að framselja þessa menn til Namibíu sé litið til þess tjóns sem þeir hafa valdið namibísku þjóðinni.
    0
  • Arnar Gudlaugsson skrifaði
    Afhverju er Þorsteinn Már ekki á lista sakborninga? Sá eini sem að græddi á þessu aðrir voru bara í vinnuni og fengu bara sín venjulegu laun frá samherja
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár