551. spurningaþraut: Einangrað tungumál í Evrópu og annað í Asíu

551. spurningaþraut: Einangrað tungumál í Evrópu og annað í Asíu

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir eyjan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað gerði páfi merki­leg­ast árið 1095?

2.  Zóróaster- eða Zaraþústra-trú er upp­runnin á ákveðnu svæði í ver­öld­inni sem sam­svarar nokkuð nákvæm­lega til­teknu nútíma­ríki. Hvaða svæði er það?

3.  Hver skrif­aði skáld­sög­una Meist­ar­inn og Margar­íta?

4.  Frá hvaða landi er sjón­varps­s­er­ían Squid Game?

5.  Hver var hinn upp­runa­legi Pegasus?

6.  Hvar töldu Stuðmenn sig eiga að troða upp í lok mynd­ar­innar Með allt á hreinu?

7.  Paul Allen hét maður sem lést fyrir nokkrum árum. Árið 1975 stofn­aði hann fyr­ir­tæki eitt ásamt félaga sínum, sem hét ... ?

8.  Þau tungu­mál eru stundum kölluð „ein­angruð“ sem eru ekki skyld neinum öðrum tungu­málum, ekki einu sinni tungu­málum í nágrenn­inu. Í Evrópu er aðeins eitt sann­kallað ein­angrað tungu­mál af þessu tagi. Hvað er það?

9.  Það ein­angr­aða tungu­mál sem útbreidd­ast er, það er hins vegar við lýði í Asíu, þar sem það er talað af 77 millj­ónum manna, fyrst og fremst í tveimur löndum. Hvaða tungu­mál er það?

10.  Hver orti ljóðið við íslenska þjóð­söng­inn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni að neðan má sjá tvo með­limi hinnar vin­sælu hljóm­sveitar Heim­il­is­tóna. Hvað heita þær? 

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Boðaði fyrstu kross­ferð­ina til Landsins helga.

2.  Persía eða Íran.

3.  Búlgakov.

4.  Suður-Kóreu.

5.  Vængj­aður hestur.

6.  Í Tívolí í Kaup­manna­höfn.

7.  Bill Gates.

8.  Baskneska.

9.  Kóreska.

10.  Matthías Jochumsson.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Hrísey.

Á neðri mynd­inni má sjá þær Ólafíu Hrönn Jóns­dóttur og Kötlu Margréti Þor­geirs­dóttur. Eins og endranær í þess­ari þraut: Ef fólk er þekkt með milli­nafni sínu, þá duga skírnar- og mill­i­nöfn. Þið fáið því rétt fyrir að segja Ólafía Hrönn og Katla Margrét, þótt föð­ur­nöfn þeirra skorti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár