„Slepptu mér“

Dag­bjartur Pálsson greiddi hæstu skatta í Hafn­ar­firði á síð­asta ári.

„Slepptu mér“

Þú greiddir hæstu skatt­ana í Hafn­ar­firði á síð­asta ári, hvernig blasir það við þér?

Það hlýtur að vera eitt­hvert rugl í gangi. Hvað seg­irðu? 

Er það? Heldur þú það? Ertu fæddur 3. ágúst 1959?

Leyf mér að hugsa. Mmmm, já. Nei, ég er að grín­ast. 

Ég er að hringja í alla sem eru í fimm efstu sæt­unum á list­unum og spjalla við þá. 

Slepptu mér. Slepptu mér. 

Á ég að sleppa þér?

Já. 

Það verða allir á list­anum, þetta er bara spurn­ing um komment. Ég er nú búin að hringja í nokkra kollega þína hjá DK hug­bún­aði, eða alla­vega tvo. 

Er ég fyrir ofan þá?

„Við erum búnir að hafa lúsa­laun alla okkar ævi“

Þú ert nátt­úr­lega í öðrum lands­hluta, ég er ekki alveg búin að sjá hvernig þetta kemur út á heild­ar­list­anum. 

Eru þeir ekki spældir að vera ekki í fyrsta sæti?

Ég held að það gæti verið að ein­hver þeirra sé í fyrsta sæti. Nei, einn er í fimmta sæti. Nei, þeir eru ekki í fyrstu sæt­unum. 

Ves­al­ingar eru þetta. 

Ég segi það með þér. 

En bróðir minn, hann er líka í Hafn­ar­firði, hvað er hann þá, í öðru sæti eða hvað?

Heyrðu, já hann er í öðru sæti, ég vissi ekki að þið væruð bræður. Eruð þið báðir í DK hug­bún­aði?

Jájá. 

Já, þið eruð kannski stofn­end­urnir eða hvað?

Já. 

Er þetta ekki af því að þið voruð að selja í fyrra sem þið eruð á þessum lista?

Jú, í raun­inni. Jújú það er ástæðan. Við erum búnir að hafa lúsa­laun alla okkar ævi. 

Já, er það? Og nú er loks­ins komið að því að þið fáið eitt­hvað fyrir ykkar snúð?

Já, við höfum aldrei kom­ist á lista yfir skatt­greið­endur. Við höfum ekki þurft að borga skatt alla okkar ævi. 

Hafið þið ekki þurft að borga skatt?

Við höfum verið undir skatt­leys­is­mörkum. Per­sónu­af­slátt­ur­inn hefur dekkað það. Nei, ég er að bulla í þér. Láttu ekki svona. 

Þú mátt ekki vera að bulla svona í mér, ég er að hringja í þig til að fá stað­festar upp­lýs­ingar. 

Þú ert ekk­ert að taka þetta upp. Þú sagðir það ekki. Þú ert ekki að taka þetta upp. 

Áður en við byrjum aftur. Þá er ég að hringja í alla í fimm efstu sæt­unum í hverjum lands­hluta fyrir sig. Og er að hringja og spyrja ykkur spurn­inga, til að nota í blað­inu. 

Jájá, en þetta er alveg rétt hjá þér. Við vorum að selja fyr­ir­tækið í fyrra. 

Og högn­uð­ust vel á því. Fenguð dágóða summu. Þú ert með 406 millj­ónir í heild­ar­árs­tekjur. Það er nú dálítil summa. 

Það er ágætis summa. 

Hvað ætlar þú að gera við 406 millj­ónir?

Hvað ætlar þú að gera við pen­ing­ana sem frúin í Hamborg gaf þér?

Það er nákvæm­lega spurn­ingin sem ég er að leita svara við. 

Þessir pen­ingar voru ekki frá Hamborg, þeir eru frá Amster­dam. Það er svosem ekk­ert langt þarna á milli. 

Ég veit að hinir tveir kollegar þínir hafa keypt sér hús. Og einn end­ur­nýj­aði bíla­flot­ann sinn. Hvað heldur þú að þú gerir?

Ég hef ekk­ert gert við pen­ing­ana enn þá og ég hef ekki hugsað hvað ég ætla að gera við þá. 

Þetta eru svo miklir pen­ingar að maður á kannski erfitt með að vita hvað maður á að gera við þá?

Haha, jújú, það er alveg örugg­lega hægt að eyða þeim. 

Ertu sestur í helgan stein eða hvað ger­ist næst?

Nei, það hefur í raun­inni ekk­ert breyst hjá mér og bróður mínum. Ég get svosem svarað fyrir hann. Við erum enn þá fram­kvæmda­stjórar hjá DK hug­bún­aði og rekum fyr­ir­tækið áfram. Við getum sagt að það hafi ekki gef­ist mik­ill tími til að hugsa hvað ég á að gera við pen­ing­ana. 

En ef þú myndir kaupa þér eitt­hvað eitt fyrir þá? Hvað væri það fyrsta?

Þú ert ekk­ert að taka þetta upp er það?

Jú, ég er að taka þetta allt upp! Ég ætla að nota þetta allt í blaðið. Ég er fyrst og fremst að reyna að fá til­finn­ingu fyrir því hverjir þetta eru á bak­við þessa pen­inga og hvað þeir ætla að eyða þeim í. 

DK hefur skilað okkur góðum pen­ing ár eftir ár eftir ár í mörg ár. Þannig að ég get svarað því að þessir eig­endur sem voru að selja, þeir þurftu ekki þennan pen­ing. En ókei. 

Þurft­irðu ekki 406 millj­ónir?!

Nei. 

Vó, það er svaka­legt.

Já, þetta fyr­ir­tæki var stöndugt fyr­ir­tæki og búið að skila eig­endum góðum pen­ing. 

Það er flott, til ham­ingju með það.

Já, takk. 

Það er bara frá­bært. Ég reikn­aði einmitt út í gær, þegar ég var að fara yfir þetta að þessi pen­ingur, 406 millj­ónir, ég held að þetta sé ell­efu sinnum íbúðin mín öll. 

Já, ég skal sleppa öllum fífla­leik en staðan er nú bara þannig að ég hef ekk­ert verið að hugsa mikið. Pen­ing­arnir eru bara geymdir inn á vörslu­reikn­ing og ávaxta sig eitt­hvað smá­vegis. Ég get alla­vega sagt þér að ég er ekki að fara að eyða þeim. Ég er ekki að fara að nota þá neitt. 

Það er nú leið­in­legt að heyra. Ég myndi gera margt fyrir 406 millj­ónir. 

Spyrðu mig bara hvað ég er búinn að gera og hvað ég hef ekki gert. 

Hvað ertu búinn að gera og hvað hefur þú ekki gert?

Neinei, ég skal ekk­ert vera að fara út í það. 

En þú ert glaður með þessa stöðu.

Jájá. 

En hvernig finnst þér að vera í fyrsta sæti í Hafn­ar­firði?

Þú meinar fyrir ofan bróður minn?

Já, hvernig er það svona í fyrsta lagi?

Hann er fimm árum yngri en ég. Hann mun örugg­lega fara fram úr mér. 

Jæja, hann hefur fimm ár alla­vega til þess. 

Ég er alla­vega ekki með nein plön um það hvað ég ætla að gera við pen­ing­ana.

Þú mátt kaupa íbúð­ina mína ell­efu sinnum ef þú vilt. Þú bara pælir í því. 

Jájá, en mig vantar ekki íbúð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samtöl við skattakónga

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár