„Ég er bara búinn að borga mína skatta“

Frímann Jóhanns­son var á fjórða sæti á lista yfir tekju­hæstu ein­stak­linga á Norð­ur­landi eystra.

„Ég er bara búinn að borga mína skatta“

Þú ert í fjórða sæti á Norð­ur­landi eystra. Hvernig blasir það við þér?

Það er nú bara það að ég var að losa mig við eignir. 

Nú jæja, hvaða eignir varstu að losa þig við?

Það er ekk­ert meira sem ég get sagt um það, vinan. 

Ertu með svona mikið í fjár­magnstekjur vegna þess að þú varst að selja þessar eignir?

Ég er ekki alveg klár á þessu. Ég er ekki einu sinni búinn að skoða þetta. 

Myndi maður titla þig sem útgerð­ar­mann?

Það held ég ekki. 

Hvernig myndir þú titla þig sjálfur?

Ég er nú bara búinn að vera sjó­maður allt mitt líf. 

Þú varst þá ekki að selja útgerð?

Jú, ég var í smá rekstri líka en hvaða máli skiptir það?

Nei, ég er bara að hringja í þá sem eru efstir á þessum listum og spyrja þá hvernig þeir auðg­uð­ust og hvernig maður eign­ast svona mikla pen­inga. Og í þínu til­felli er það vegna þess að þú seldir útgerð, eða hvað?

Nein­einei. 

„Þú verður að tala við þessa menn sem eru með 35 millj­ónir á mán­uði“ 

Hvað er það þá?

Þú verður bara að kom­ast að þessu sjálf. Ef það er svona mikið kapps­mál að skoða þetta. Ég er bara búinn að borga mína skatta alveg hreint. 

Jájá, ég er nú ekki að saka þig um neitt. En hvað gerir maður við 111 millj­ónir?

Það hlýtur að vera hægt að nota það eitt­hvað. 

Já, ég held það nú. Hvað ætlar þú að gera við þær?

Þú verður að tala við þessa menn sem eru með 35 millj­ónir á mán­uði. 

Ég tala við þá líka. Eins og ég segi, ég er að tala við alla. Ná ein­hverri til­finn­ingu fyrir því hvernig mann­eskjur þetta eru á bak við þessi nöfn og þessar fjár­hæðir. Ætlar þú að kaupa þér hús eða bíl eða hvernig sérðu fyrir þér að eyða 111 millj­ónum?

Ég var að hugsa um að eiga þetta bara svona í ell­inni. Ég á ekki digran líf­eyr­is­sjóð þó svo að ég sé búinn að borga í hann alla mína ævi. Ég reikna með því að lifa á þeim næstu árin. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samtöl við skattakónga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár