„Hefði helst viljað vera í fyrsta sæti“

Pétur Björns­son var í öðru sæti á lista yfir skatta­kónga Reykja­víkur og því þriðja á heild­ar­list­anum.

„Hefði helst viljað vera í fyrsta sæti“

Þú ert í þriðja sæti list­ans. Hvernig blasir það við þér?

Ég trúi þessu ekki. 

Þú verður að trúa þessu. Þetta er svona. En af hverju trúir þú þessu ekki?

Jújú, ég vissi alveg að hverju stefndi. 

Jæja, það er þá eitt­hvað. En ég er að spá í starfstitl­inum þínum, hver er hann?

Ég er fram­kvæmda­stjóri og stjórn­ar­for­maður í nokkrum fyr­ir­tækjum.

Þannig engu einu sér­stak­lega? Þannig að ég myndi bara segja fram­kvæmda­stjóri?

Jájá, það er bara nokkuð nærri lagi. 

Hvernig finnst þér að vera í þriðja sæti?

Ég hefði nú helst viljað vera í fyrsta sæti. En það þýðir ekk­ert að fást um það. 

Þú ert kannski ekk­ert það langt frá því að vera í fyrsta sæti. Þú ert með 1,4 millj­arða meðan sá sem er í fyrsta er með 1,9. Svo þú ert alla­vega með ríf­lega millj­arð.  

Já, það eru sölu­tekj­urnar. Ég seldi hlut í fyr­ir­tæki sem ég átti. 

Nú jæja, hvaða fyr­ir­tæki var það?

Það heitir Ísfell. 

Og hagn­að­istu svona rosa­lega á því?

Já. þetta er stórt fyr­ir­tæki og ég er búinn að eiga það í 30 ár. 

Til ham­ingju með söl­una. 

Jájá, þetta hefur gengið vel. 

Já, greini­lega hefur þetta gengið vel fyrst þú fékkst 1,4 millj­arða, þetta er svo há upp­hæð. En hvað ætlar þú að gera við alla þessa pen­inga?

Ég er nú búinn að eyða þeim öllum fyrir löngu síðan. 

Ertu búinn að eyða þeim öllum?

Neinei, ég er að grín­ast. Ég byrj­aði á því að borga upp allar skuldir í þeim fyr­ir­tækjum sem ég kem að. Síðan hef ég verið að fjár­festa hér og þar og svo fram­vegis. Það verður nú bara að vera mitt mál. 

En ætlar þú ekki að kaupa þér neitt flott?

Eitthvað flott?

Hús, bíl … ég veit ekki hvað fólk kaupir þegar það á svona mikið af pen­ingum. 

Ég á nóg af öllu. 

Þannig að það er ekk­ert á list­anum? Bara nú loks­ins á ég 1,4 millj­arða ætla ég loks­ins að kaupa mér þetta?

Nei, en ég keypti mér reyndar nýjan bíl en hann var ekk­ert rosa­lega dýr. 

En hvað er þá næst hjá þér? Þú ert búinn að selja hlut­inn, hvað tekur við?

Ég held bara áfram, ég er í svo mörgu. Ég er meira að segja enn þá stjórn­ar­for­maður Ísfells þó ég sé búinn að selja hlut­inn minn. 

Af því að það er svo gaman eða hvað?

Þetta var vinur minn sem átti fyr­ir­tækið á móti mér sem keypti hlut­inn, eða hann og fram­kvæmda­stjóri félags­ins. Þeir keyptu og eiga Ísfell í dag. Hann bað mig um að vera áfram. Mér rann blóðið til skyld­unnar því mér þykir vænt um fyr­ir­tækið og vænt um þetta fólk. 

Hvað gerir þetta fyr­ir­tæki? Og hvað ertu búinn að eiga það lengi?

Ég stofn­aði það árið 1992. Ísfell bæði selur efni til veið­ar­færa­gerðar og býr til veið­ar­færi og þjón­ustar veið­ar­færi við flot­ann allt í kringum landið. Auk þess seljum við og þjón­ustum híf­ing­ar­búnað fyrir til dæmis stór­iðju­fyr­ir­tækin í land­inu og fyrir bygg­ing­ar­verk­taka og skipa­fé­lögin og allt þess háttar. Síðan reistum við á síð­asta ári full­komna þjón­ustu­stöð fisk­eld­iskvíar í Hafn­ar­firði sem við tökum kví­arnar þegar þær eru búnar að vera í sjónum í eitt og hálft ár, þá eru þær orðnar mjög grónar þannig að við tökum við kví­unum og setjum þær í stóra þvotta­vél, þvoum þær, förum yfir netið og gerum við öll göt sem kunna að vera þar og gerðum styrk­leika­próf á þeim. Síðan litum við kví­arnar og þurrkum þannig að þær séu til­búnar í næstu vinnu.

En hvaðan kemur þú, hvað lærðir þú? Hvernig komstu þér í þetta allt saman?

Ég er fæddur og upp­tal­inn í nyrsta kaup­túni á Íslandi sem þú sem blaða­maður átt að vita hvað er. 

Ég veit það ekki. Ég er svo nýr blaða­maður, sjáðu til. 

Er það. Ertu bara kjúlli? 

Já, ég er bara kjúlli. 

Ég er frá Rauf­ar­höfn sem er norður á Mel­rakka­sléttu. 

Og hvað lærðir þú? Hvernig komstu þér í þetta allt?

Ég skal nú segja þér fór bara hefð­bundna leið. Ég fór í mennta­skóla, Mennta­skól­ann á Akureyri og fór svo í Stýri­manna­skóla. Ég var alinn upp við sjó­inn. Pabbi og afi voru sjó­menn og útgerð­ar­menn. 

Komstu inn í þetta í gegnum þá? Í biss­ness­inn?

Nei, þú verður að hafa smá þol­in­mæði ef þú vilt fá sög­una. 

Já, fyr­ir­gefðu. Mér finnst þetta svo skemmti­leg saga að ég hef ekki hemil á mér. 

Síðan fór ég í Stýri­manna­skóla og á sjó­inn í eitt og hálft ár. Þá fórum við aftur til Reykja­víkur og í meira nám, konan mín fór í Kenn­ara­há­skól­ann, ég fór í Tækni­skól­ann í útgerð­ar­deild. Svo fór ég að vinna í landi á meðan að konan mín var að klára námið. Þá vorum við bara á leið­inni norður á Rauf­ar­höfn þar sem við ætl­uðum að setj­ast að, þegar mér bauðst starf úti í Englandi. Starf við að afgreiða íslensk fiski­skip. Þar ætl­uðum við að vera í tvö ár svona til þess að víkka sjón­deild­ar­hring­inn aðeins áður en við færum nú að festa okkur á Rauf­ar­höfn. Til að gera langa sögu stutta þá komum við heim sextán árum síðar. 

En búið þið núna í Reykja­vík?

Já, við erum búin að búa í Reykja­vík síðan við komum heim árið 1997. Ég var að vinna hjá ensku fyr­ir­tæki í fimm ár, þá stofn­aði ég mitt eigið fyr­ir­tæki og sá rekstur gekk mjög vel. Á meðan ég var þarna úti þá stofn­aði ég Ísfell með bróður mínum og öðrum manni og hef sem­sagt verið stjórn­ar­for­maður þess félags frá því það var stofnað fyrir að verða 30 árum. 

Vá. Þannig að maður þarf eig­in­lega að koma sér í útgerð­ina ef maður ætlar að verða svona ríkur?

Ég held nú að þú getir farið í flestar greinar hérna heima og fundið menn með fyr­ir­tæki sem eru meira virði heldur en þetta. 

Þeir eru ekki í þriðja sæti á list­anum. 

Nei, af því að þeir eru ekki búnir að vera að selja. 

Nei, einmitt.

Hver er í efsta sæti?

Inga Dóra Sig­urð­ar­dóttir

Hver er hún?

Stærð­fræði­kenn­ari. 

Hahahaha. Svo ert þú að tala um útgerð. 

Heyrðu, mað­ur­inn sem er í öðru sæti er líka útgerð­ar­maður. Þetta er ekk­ert svo galið.

Hver er það?

Hann heitir Ragnar Guð­jóns­son. 

Já, hann Raggi. Hann átti Esjar. 

Nákvæm­lega. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samtöl við skattakónga

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
5
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár