„Ég vil að það sem ég geri ruggi bátnum“

Unnur Ösp Stef­áns­dóttir, leik­stjóri og leik­kona, segir að hún hafi fengið mik­inn inn­blástur í kór­óna­veiru­far­aldr­inum. Hafi fólk ekki eld í sér til að hafa áhrif á sam­fé­lagið viti hún ekki hvaða erindi það eigi.

„Ég vil að það sem ég geri ruggi bátnum“
Þarf að spyrja spurn­inga Unnur Ösp segir að aldrei hafi verið meiri þörf á að velta við steinum og bregða ljósi á þá sem eru á jaðri sam­fé­lags­ins en einmitt nú, eftir að hafa gengið í gegnum heims­far­aldur kór­óna­veiru. Mynd: Jorri

„Maður þorir varla að segja það upp­hátt því að auð­vitað hefur þetta verið alveg hrika­lega erf­iður tími fyrir marga en ég upp­lifði mik­inn inn­blástur. Við erum að upp­lifa stór­brotn­ustu tíma alla vega minnar kyn­slóðar og þeirra sem yngri eru og það hefur sann­ar­lega opnað augu mín.“

Þetta segir Unnur Ösp Stef­áns­dóttir, leik­stjóri og leik­kona, en á dög­unum hlaut sýn­ingin Vertu úlfur í hennar leik­stjórn sjö Grímu­verð­laun, meðal ann­ars fyrir sýn­ingu árs­ins, leik­stjórn árs­ins og fyrir leik­ara í aðal­hlut­verki. Björn Thors, eig­in­maður Unnar, leikur aðal­hlut­verk sýn­ing­ar­innar sem er leik­gerð Unnar byggð á bók Héðins Unn­steins­sonar, for­manns Geð­hjálpar. Bókin Vertu úlfur er sjálfsævi­sögu­leg frá­sögn þar sem Héðinn greinir frá reynslu sinni af geð­hvörfum.

Unnur segir að það að hafa upp­lifað heims­far­aldur kór­óna­veirunnar hafi haft gríð­ar­leg áhrif á hana sjálfa, á upp­setn­ingu leik­rits­ins og muni hafa áhrif á alla hennar list­rænu nálgun til fram­tíðar. „Þegar ég var yngri og heims­myndin var …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár