Afhenti ungum hjónum hvítvoðung

Dóra Ein­ars­dóttir starf­aði sem flug­freyja þar sem hún hlúði að hvít­voð­ungi sem var verið að ætt­leiða til Íslands og afhenti hann ungum hjónum í flug­höfn­inni. Reynslan hafði mikil áhrif á hana.

Afhenti ungum hjónum hvítvoðung

Áður en Dóra Ein­ars­dóttir leik­mynda- og bún­inga­höf­undur fór til náms í Berlín í Þýska­landi 1974 starf­aði hún í tvö ár sem flug­freyja hjá Flug­fé­lagi Íslands. Í eitt skiptið var flogið til Osló og sat hún síðan mest alla leið­ina til Íslands með hvít­voð­ung í fang­inu sem íslensk hjón voru að ætt­leiða.

„Barnið grét mikið og tal­aði ég við það og söng á lágum nótum. Einnig fór ég með öll ljóðin sem ég kunni úr bláu skóla­ljóð­unum og komst barnið í ró.

Í komusalnum í gömlu flug­stöðv­ar­bygg­ing­unni á Kefla­vík­ur­flug­velli var risa­stór gluggi þar sem komu­far­þegar og við í áhöfn­inni sáum fram á gang þá sem voru að taka á móti far­þegum. Ég fékk strax augn­kontakt við ungt par hinum megin við glerið og var konan grát­andi og mjög spennt. Toll­ar­arnir vís­uðu okkur inn í lítið her­bergi og var náð í parið.

„Konan var grát­andi og mjög spennt …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár