Verkleysi lögreglu olli því að misneytingarmál fyrndist

Lög­reglu­stjór­anum á Suð­ur­nesjum þótti ljóst að kona hefði nýtt sér heila­bilun manns til að hafa af honum eignir og fjár­muni. Hins vegar var ekki gefin út ákæra á hendur kon­unni þar eð rann­sókn máls­ins stöðv­að­ist um tveggja og hálfs árs skeið. Á þeim tíma fyrnd­ist brotið.

Verkleysi lögreglu olli því að misneytingarmál fyrndist
Kærir lög­reglu­full­trúa fyrir brot í starfi Inga Jóna er ósátt við með­höndlun lög­regl­unnar á rann­sókn fjár­magns­flutn­inga frá föður hans á þeim tíma sem hann hafði verið greindur með vits­muna­röskun. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum ónýtti með seina­gangi mál á hendur konu, sem þó þótti ljóst að hefði haft eignir og verð­mæti af manni með alvar­lega heila­bilun. Rannsókn máls­ins stöðv­að­ist í tvö og hálft ár án sýni­legrar ástæðu og á þeim tíma fyrnd­ist málið. Læknir taldi ljóst að mað­ur­inn hefði ekki verið hæfur til að gæta hags­muna sinna þegar kom að fjár­hags­legum mál­efnum og að hann hefði ekki verið hæfur til að taka ákvörðun um að ganga í hjóna­band með kon­unni vegna veik­inda sinna.

Hinn 26. júní 2015 lagði Inga Jóna Trausta­dóttir fram kæru hjá lög­reglu á hendur eig­in­konu föður síns, Trausta Hólm Jón­as­sonar. Kærði Inga kon­una vegna meintra fjársvika og mis­neyt­ingar á hendur föður hennar enda taldi hún að konan væri að mis­nota fé, eignir og önnur verð­mæti hans. Trausti átti þá skuld­lausa fast­eign, sparifé og hafði almennt farið mjög vel með sitt en eftir að hann tók upp sam­band …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár