408. spurningaþraut: Bubbi, Nena og Michael Jordan

408. spurningaþraut: Bubbi, Nena og Michael Jordan

Hæ. Klikkið hér. Þá kemur þrautin frá í gær.

***

Auka­spurn­ing, sú hin fyrri:

Konan á mynd­inni hér að ofan var fræg leik­kona. Hvað hét hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Árið 1984 varð skelfi­legt slys í borg­inni Bhopal þegar gas lak út úr verk­smiðju. Mörg þús­und manns dóu. Í hvaða landi er Bhopal?

2.  Hvað heitir ný plata Bubba Morthens?

3.  Samkvæmt öllum venju­legum stöðlum um efna­hags­styrk ein­stakra ríkja eru Banda­ríkin efst á lista og kemur það vart á óvart. En hvaða land er í öðru sæti?

4.  Og hvaða land er í því þriðja?

5.  Hvað heitir stærsta eyjan sem til­heyrir Ástralíu? (Fyrir utan Ástralíu-eyj­una sjálfa.)

6.  Í hvaða borg var Checkpoint Charlie?

7.  Hvað hét banda­rísk sjón­varps­s­ería sem gekk sam­fleytt frá 2004 til 2010 og fjall­aði um hóp fólks sem varð inn­lyksa á eyði­eyju í Suð­ur­höfum eftir að far­þega­þota hrap­aði þar niður?

8.  Fyrst minnst er á sjón­varps­s­er­íur, þá var ein afar vin­sæl sería sem fjall­aði um póli­tík og valda­bar­áttu sýnd á árunum 2010-2013. Nú nýlega var til­kynnt, mörgum til gleði, að ný sería yrði svo sýnd á næsta ári. Hvað nefnd­ist þessi seria?

9.  Með hvaða körfu­boltaliði spil­aði Banda­ríkja­mað­ur­inn Michael Jordan lengst af?

10.  Nena er þýsk söng­kona sem fyrir tæpum þrjá­tíu árum sló í gegn með lagi um 99 ... hvað?

***

Auka­spurn­ing, sú hin seinni:

Hér að neðan má sjá eina stærstu borg heims­ins um 1500. Hún er enn á sínum stað og enn ein af stærstu borgum heims­ins en þó gjör­breytt og heitir nú öðru nafni. Hvaða nafni?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Indland.

2.  Sjálfs­mynd.

3.  Kína.

4.  Japan.

5.  Tasmanía.

6.  Berlín.

7.  Lost.

8.  Borgen.

9.  Chicago Bulls.

10.  Blöðrur, loft­belgi.

99 Luft­ballon heitir lagið á frum­mál­inu þýsku. Sjá hér til hliðar!

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Leik­konan á efri mynd­inni er Bríet Héð­ins­dóttir.

Borgin, sem spurt er um í seinni auka­spurn­ingu, heitir nú Mexíkó-borg, en var nefnd Tenochititlan á sínum tíma.

***

Og hér er þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár