409. spurningaþrautin: Hér er spurt um tvær „skæruliðasveitir“

409. spurningaþrautin: Hér er spurt um tvær „skæruliðasveitir“

Hér er þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér er ekki allt sem sýn­ist. Hver er karl­inn á passa­mynd­unum hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað nefn­ist ríkið Sri Lanka áður fyrr?

2.  Þar stóð hreyf­ing aðskiln­að­ar­sinna lengi fyrir hryðju­verkum og var líka mætt af mik­illi hörku af yfir­völdum í Sri Lanka. Hvað nefnd­ist hreyf­ingin?

3.  Hvað heitir stærsta stjörnu­þokan í nágrenni við okkar stjörnu­þoku, Vetr­ar­braut­ina?

4.  Í hvaða heims­álfu er hæsta fjall Jarðar — utan Asíu?

5.  Hvað heitir for­sæt­is­ráð­herra Indlands?

6.  Hver vann um dag­inn barna­bóka­verð­laun Guðrúnar Helga­dóttur fyrir sög­una Sterk, sem fjallar um trans­stúlku?

7.  Hvað heitir tenn­is­konan sem hætti á dög­unum þátt­töku í einu helsta tennis­móti árs­ins vegna ágrein­ings um hvort henni bæri að taka þátt í blaða­manna­fundum? Ann­að­hvort for­nafn eða eft­ir­nafn hennar nægir.

8.  Hvað heitir hinn rúss­neskætt­aði eig­andi fót­bolta­fé­lags­ins Chelsea í London?

9.  Í hvaða landi er Stóra­bjarn­ar­vatn, sem er um það einn þriðji af stærð Íslands að flat­ar­máli?

10.  Hvað heitir skip­stjór­inn sem var meðal helstu manna í svo­nefndri „skæru­liða­sveit“ Samherja?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Konan á mynd­inni hér að neðan er að hefja sinn póli­tíska feril um þessar myndir. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ceylon.

2.  Tígrarnir, eða Tamíl-tígrar.

3.  Andrómeda.

4.  Suður-Ameríku.

5.  Modi.

6.  Margrét Tryggva­dóttir.

7.  Naomi Osaka heitir hún fullu nafni. Þið fáið sem sagt rétt fyrir hvort heldur nafnið sem er.

8.  Roman Abramovich.

9.  Kanada.

10.  Páll Stein­gríms­son.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er argent­ínski bylt­ingar- og komm­ún­ista­for­ing­inn Che Guevara.

Þarna er þarna í dul­bún­ingi á fölsuðu vega­bréfi sem hann not­aði til að kom­ast inn til Bólivíu þar sem hann hugð­ist hefja upp­reisn alþýð­unnar, en lét raunar líf sitt.

Hann hafði þá verið hand­samaður af bóli­vískum her­mönnum og drep­inn.

Á neðri mynd­inni er Kristrún Frosta­dóttir.

Hún verður í haust í fram­boði til þings fyrir Sam­fylk­ing­una.

***

Hér er þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár