407. spurningaþraut: Mestu fossar í Norður-Ameríku?

407. spurningaþraut: Mestu fossar í Norður-Ameríku?

Hér er hlekkur á þraut gær­dags­ins.

***

Hvaða sagna­heimi til­heyrir per­sónan (eða per­són­urnar) sem sjá má á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi leikur fót­boltalið sem gengur undir nafn­inu „Guli kaf­bát­ur­inn“ vegna þess að bún­ingar félags­ins eru svo fal­lega gulir?

2.  Hvaða hljóm­sveit sendi frá lag um gulan kaf­bát?

3.  PlayStation heita vin­sælar leikja­tölvur. Hvaða fyr­ir­tæki fram­leiðir þær?

4.  Fót­boltaliðið Brent­ford komst á dög­unum í fyrsta sinn upp í ensku Úrvals­deild­ina í fót­bolta karla. Brent­ford er útbær eða úthverfi stór­borgar einnar á Englandi. Hver er sú borg?

5.  Af hvaða þjóð­erni var valda­ættin Ottómanar hér áður fyrr?

6.  Jóhanna af Örk átti merki­lega ævi og er þjóð­ar­dýr­lingur Frakka. En hvenær var hún uppi? Fæddist hún árið 812, 1012, 1212, 1412 eða 1612?

7.  „Það hefur aldrei þótt við­eig­andi að skárra kven­fólk graðg­aði í sig fiski á almanna­færi hér undir Jökli.“ Svo mælir kona ein í skáld­sögu einni. Hver skrif­aði þá skáld­sögu?

8.  Hvað heita fræg­ustu og mestu fossar Norður-Ameríku?

9.  En hvað heitir áin sem þeir fossar eru í?

10.  Spotify heitir fyr­ir­tækið sem rekur vinæl­ustu tón­list­ar­streym­isveitu heims­ins. Storytel heitir annað fyr­ir­tæki sem rekur ein­hverja vin­sæl­ustu streym­isveitu heims með hljóð­bækur, að minnsta kosti í okkar heims­hluta. Spotify og Storytel eru bæði upp­runnin í sama land­inu. Hvaða land er það? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir sá rit­höf­undur, sem hér sést?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Spáni. Um er að ræða félagið Vill­ar­r­eal.

Liðsmenn Vill­ar­r­ealfagna unnum sigri.

2.  Bítl­arnir.

3.  Sony.

4.  London.

5.  Tyrk­neskir.

6.  1412.

7.  Halldór Laxness. Þetta er úr Kristni­haldi undir Jökli.

8.  Níagara-fossar.

9.  Níagara-á.

10.  Svíþjóð.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Fílífjonkan úr ver­öld Múmínálf­anna.

Á neðri mynd­inni er Fjodor Dostoé­v­skí.

***

Hér er hlekkur á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár