406. spurningaþraut: Eyja þar sem búa eingöngu svín? Hver skrifaði um hana?

406. spurningaþraut: Eyja þar sem búa eingöngu svín? Hver skrifaði um hana?

H é r   e r   h l e k k u r   á   s í ð u s t u   þ r a u t .

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Hér er mað­ur­inn á mynd­inni hér að ofan.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hversu margar almenn­ings­sund­laugar eru innan borg­ar­marka Reykja­víkur?

2.  Frá 13.-15. febr­úar 1945 varð borg ein í Evrópu fyrir gíf­ur­legum loft­árásum sem hafa orðið tákn fyrir grimmi­legar árásir á óbreytta borg­ara. Hvaða borg var þetta?

3.  Soyuz kall­ast ákveðin far­ar­tæki. Hvaða far­ar­tæki eru það?

4.  The Deer Hunter hét fræg kvik­mynd sem gerð var í Banda­ríkj­unum á ofan­verðum átt­unda ára­tugnum. Hún fjallar ekki um dádýra­veiðar, þótt þeim bregði vissu­lega fyrir, heldur snýst myndin um reynslu nokk­urra ungra karla í Banda­ríkj­unum af ... hverju?

5.  Djöf­ull­inn gengur í ... hverju ... sam­kvæmt annarri banda­rískri bíó­mynd? Sú var gerð 2008.

6.  Hvað heitir fjall­garð­ur­inn sem liggur eftir Suður-Ameríku endi­langri?

7.  Nálægt hvaða þétt­býl­is­stað á Íslandi eru mann­gerðir hellar sem ein­hvern tíma voru ef til vill manna­bú­staðir?

8.  Hvað hét sú dóttir Egils Skalla­gríms­sonar sem hvatti hann til að yrkja sig frá sorg sinni?

9.  Hver lék aðal­kven­hlut­verkið — Hörpu — í grín­þátt­unum Hreinn Skjöldur, ásamt Steinda og Pétri Jóhanni?

10.  Kona ein hefur feng­ist við margt og mikið. Hún er til dæmis í hljóm­sveit­inni FM Belfast, hún hefur víða við í gríni alls­konar og meðal ann­ars tekið þátt í að semja ára­mótaskaup, hún hefur gefið út barna­bók­ina Grísa­fjörð þar sem búa ein­göngu svín og hún er ekki síst kunn fyrir skop­myndir sínar úr hvunn­dags­líf­inu. Hvað heitir hún? Hér dugar for­nafn.

***

Seinni auka­spurn­ing.

Hvað nefn­ast fiskar þeir er héðan að neðan sjást?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Þær eru sjö. Árbæj­ar­laug, Breið­holts­laug, Laug­ar­dals­laug, Sund­höllin, Vest­ur­bæj­ar­laug, Graf­ar­vogs­laug og Klé­bergs­laug á Kjal­ar­nesi.

2.  Dresden.

3.  Sovésk og síðan rúss­nesk geim­för.

4.  Víetnam-stríð­inu.

5.  Prada.

6.  And­es­fjöll.

7.  Hellu.

8.  Þor­gerður.

9.  Saga Garð­ars­dóttir.

10.  Lóa Hjálmtýs­dóttir heitir hún fullu nafni, en Lóa dugar altso.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Ungi karl­inn er Lewis Hamilton marg­faldur heims­meist­ari í kappakstri.

Fisk­arnir eru af teg­und­inni piranha.

***

Hér er svo hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár