405. spurningaþraut: Hitinn á yfirborði sólarinnar?

405. spurningaþraut: Hitinn á yfirborði sólarinnar?

Hér er hlekkur á þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Á mynd­inni hér að ofan (sem hefur verið lögð út af á hlið) má sjá einn af byssu­bófum villta vest­urs­ins í Banda­ríkj­unum á ofan­verðri 19. öld. Hver er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvar á Íslandi er Vest­ur­fara­setrið?

2.  Flestir íslenskir vest­ur­farar fóru til Kanada eða Banda­ríkj­anna. En all­margir héldu þó til lands eins ögn sunnar. Hvaða land var það?

3.  Hvaða hljóm­sveit gaf út plöt­urnar Fantastic (1983) og Make It Big (1984) en hætti svo fljót­lega.

4.  Í hvaða landi fædd­ist Jósef Stalín?

5.  Hver er hit­inn á yfir­borði sól­ar­innar? 5.600 gráður á Celsius — 56.000 gráður -- 560.000 gráður — 5.600.00 gráður — eða 56 milljón gráður?  

6.  Hvaða sam­tökum stýrir Julian Assange?

7.  Í grískum forn­saga­heimi segir frá hetju sem hélt af stað heim úr Tróju­stríð­inu, en lenti í alls konar raunum á heim­leið­inni. Þegar upp var staðið hafði ferðin tekin hetj­una tíu ár, en hetjan komst loks heim til sín. Hvað hét þessi hetja?

8.  En hvað hét eig­in­konan sem beið trú og trygg allan tím­ann og spann vef meðan hún varð­ist ótal biðlum sem vildu eign­ast hana?

9.  Kar­dasian-fjöl­skyldan hefur verið fyr­ir­ferð­ar­mikil í banda­rísku raun­veru­leika­sjón­varpi allt frá 2007. Á hvaða sjón­varps­stöð hefur hún sér­stak­lega haslað sér völl?

10.  Sigmar Guð­munds­son starfs­maður RÚV er nú far­inn í þing­fram­boð og hefur því látið af störfum. Hann hefur und­an­farið stýrt við­tals­þáttum í sjón­varp­inu sem hétu ...?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan hér að neðan? Það má fylgja sög­unni að hún var rit­höf­undur.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hofsósi.

2.  Brasilía.

3.  Wham.

4.  Georgíu.

5.  „Aðeins“ 5.600 gráður.   

6.  Wikileaks.

7.  Ódysseifur.

8.  Penelópa.

9.  E!

10.  Okkar á milli.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá Henry McCarty (1859-1881) sem þekkt­astur er reyndar undir gælu­nafn­inu Billy the Kid. 

Á neðri mynd­inni er Tove Jansson.

***

Og hlekkur á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár