Varð að gefa frá sér barnið sitt eftir vistina á Laugalandi

„Ég upplifði eins og þau væru búin að ræna þeim báðum,“ segir móðir konu sem eignaðist dreng aðeins fimmtán ára á meðferðar­heimilinu Lauga­landi. Konan var vistuð á meðferðar­heimilinu í eitt og hálft ár með ungbarnið.

Fann styrk í hinum stúlkunum
Fann styrk í hinum stúlk­unum Konan segir að vistin með litla dreng­inn hafi verið mjög ein­mana­leg á Lauga­landi. Hinar stúlk­urnar hafi þó verið henni góðar. Hún er hér með stúlk­unum af Lauga­landi á árs­há­tíð Hrafn­g­ils­skóla, önnur frá vinstri. Við hlið hennar stendur Sigurósk Tinna Páls­dóttir, fyrir miðju er Dagný Rut Magn­ús­dóttir og lengst til hægri er Kolbrún Þor­steins­dóttir. Þær hafa allar stigið fram og lýst ofbeld­inu á Lauga­landi.

Kona sem vistuð var á meðferðar­heimilinu Lauga­landi árið 2000, þá fimmtán ára, og átti þar barn, fann sig knúna til að gefa barnið frá sér að vistuninni lokinni. Konan segir ástæðuna hafa verið þá að hún hafi engan stuðning fengið á heimilinu og ekki notið neinnar kennslu eða fræðslu um hvað fælist í uppeldi barna á því eina og hálfa ári sem hún var vistuð þar með ungbarnið. „Ef ég hefði fengið einhverja fræðslu, einhverja aðstoð, hefði þetta ekki farið svona,“ segir konan, sem var sautján ára þegar vistinni á Lauga­landi lauk.  Sonur hennar var þá eins og hálfs árs.

„Ég upplifði eins og þau væru búin að ræna þeim báðum,“ segir móðir konunnar í samtali við Stundina. Konan sem vistuð var á meðferðar­heimilinu lýsir því að rekstrar­aðilar meðferðar­heimilisins, Ingjaldur Arnþórsson og Áslaug Brynjars­dóttir, hafi haldið því fram að móðir hennar hafi ekki viljað eiga við hana samskipti, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á meðferðar­heimilinu í Varpholti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerfis­bundnu andlegu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt líkamlegu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á meðferðar­heimilinu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til forstöðu­hjóna heimilisins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­verndar­yfirvalda sem brugðust þeim.
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfis­bundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi

Niður­staða skýrslu Gæða- og eftirlits­stofnunar velferðar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á meðferðar­heimilinu hafi verið beittar andlegu ofbeldi. Yfir helmingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar líkamlegu ofbeldi og fjöldi til viðbótar staðfesti að hafa orðið vitni að slíku. Barna­verndar­stofa brást hlutverki sínu.
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­haldandi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á meðferðar­heimilinu Varpholti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arnþórs­syni, forstöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rannsaka á heimilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft samband við hana til að upplýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sálfræði­þjónustu,“ segir Anna María Ingveldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókninni.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár