Nýr veruleiki: Höfuðborgarbúar með útsýni yfir eldgos

Jarð­eld­ur­inn í Geld­inga­dal er orð­inn vel sýni­legur af höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Jarð­fræð­ingar velta upp mögu­leik­anum á langvar­andi eld­gosi.

Nýr veruleiki: Höfuðborgarbúar með útsýni yfir eldgos
Gosið í nótt Mynd tekin frá Sel­tjarn­ar­nesi. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víða á Reykja­nesi búa nú við útsýni á eld­gos, sem varað getur til lengri eða skemmri tíma. Í kvöld og nótt hefur bjarm­inn af gos­inu sést vel þaðan sem útsýni gætir í átt að gossvæð­inu, til dæmis frá Ægissíðu í Vesturbæ Reykja­víkur, Öskju­hlíð, Sel­tjarn­ar­nesi og svo Hafn­ar­firði sem liggur næst gos­s­töðv­unum.

Í gær jókst virkni í auka­gíg sem liggur við hlið aðal­gígs­ins í Geld­inga­dal. Ekki er ljóst hvort heild­ar­gos­flæði hafi auk­ist. Sýni­leiki goss­ins ætti þó að hafa auk­ist við að gíg­barm­arnir hækka og skýja­hulu hefur létt.

Jarð­fræð­ingar hafa í vax­andi mæli velt upp mögu­leik­anum á því að gosið gæti varað lengi. Páll Ein­ars­son sagði í sam­tali við Rúv í gær að kvikuflæði eins og það sem berst sem hraun­straumur upp í Geld­inga­dal geti haldið gospípu opinni í ára­tugi. 

„Þetta gæti orðið langt gos,“ sagði Frey­steinn Sig­munds­son jarð­fræð­ingur í fréttum Rúv í kvöld. Þor­valdur Þórð­ar­son jarð­fræð­ingur sagði í sam­tali við mbl.is að gosið í Geld­inga­dal hefði lík­indi með eld­gosi á Havaí sem varði í 32 ár. Hann taldi gosið hafa færst í auk­ana í gær.

Hér fyrir neðan má sjá beina útsend­ingu af gossvæð­inu í vef­mynda­vél Rúv.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár