Geldingagígur ekki lengur ræfill og kominn með félaga
Geld­inga­gígur Eftir allt saman hefur gosið í Geld­inga­dal verið gjöf­ulla og frjósam­ara en margir vís­inda­menn bjugg­ust við í upp­hafi, þegar það var kallað „ræf­ill“. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Geldingagígur ekki lengur ræfill og kominn með félaga

Gosið í Geld­inga­dölum gæti verið komið til að vera til lengri tíma. Efna­sam­setn­ing bendir til þess að það komi úr möttli jarðar og lík­ist fremur dyngju­gosi heldur en öðrum eld­gosum á sögu­legum tíma.

Gígurinn í Geld­inga­dölum við Fagra­dals­fjall hélt áfram að taka á sig mynd í dag. Þegar Stundin flaug yfir gossvæðið var enn fjöldi fólks á staðnum þótt rýma ætti vegna ótta við gasmengun.

Svo virð­ist sem gosið hafi verið van­metið í upp­hafi.

Stundin flaug með Páli Stef­áns­syni ljós­mynd­ara og Sölva Axels­syni flug­manni yfir gossvæðið skömmu áður en rýma átti svæðið vegna þess sem talið var að yrði lífs­hættu­legr gasmengun. Þá voru enn hund­ruð manna við hraunjað­ar­inn. Þegar mest lét teygði bíla­röðin á Suð­ur­strand­ar­vegi sig um tvo kíló­metra.

Fjöl­menniÁ milli klukkan sex og sjö í kvöld var fjöldi fólks við­staddur stein­snar frá hraunjaðr­inum.

„Ræfill“ rís

Sýn í gígKvikan mallar innan vel mót­aðra gíg­bar­manna.

Þegar gosið hófst síð­asta föstu­dags­kvöld sagði Magnús Tumi Guð­munds­son jarð­fræð­ingur að það væri „ótta­legur ræf­ill“ og Páll Ein­ars­son jarð­fræð­ingur taldi það ræf­ils­legt. Þótt það hafi látið lítið yfir sér fara í upp­hafi og verið spáð lít­illi reisn og úthaldi er gíg­ur­inn nú orð­inn tugir metrar að hæð og er komin upp umræða meðal jarð­vís­inda­manna um að hugs­an­lega sé um afar sér­stakt gos sé að ræða.

Það hefur ekki gosið á Fagra­dals­svæð­inu í sex þús­und ár og sam­kvæmt Magnúsi Tuma Guð­munds­syni jarð­fræð­ingi hefur ekki gosið með svo frum­stæðri kviku í sjö þús­und ár. Hún er talin eiga rót sína að rekja á 15 til 17 kíló­metra dýpi, úr möttli jarðar, og er nú talið hugs­an­legt að um langvar­andi flæði­gos geti verið að ræða, svo­kallað dyngju­gos.

Í Kast­ljós­inu á Rúv í kvöld ræddu Sæmundur Ari Hall­dórs­son jarð­fræð­ingur og Páll Ein­ars­son um að efna­sam­setn­ing kvik­unnar sem streymir upp í Geld­inga­dölum lík­ist mun meira því sem ger­ist í stórum dyngju­gosum en gosum á sögu­legum tíma. Sæmundur sagði að „slá­andi skyld­leiki“ með stórum dyngju­gosum, til dæmis Þrá­ins­skildi sem teygir sig skammt frá Keili að Vogum á Vatns­leysu­strönd, og Sand­fells­hæð vest­ast á Reykja­nesi, sem runnu skömmu eftir ísöld, eða á nútíma. Einnig eru þó dæmi um smærri hraun með þennan skyld­leika.

Þor­valdur Þórð­ar­son jarð­fræð­ingur segir í sam­tali við mbl.is í kvöld að lík­indi séu með Geld­inga­gos­inu og eld­gosi á Havaí, sem varði í 32 ár.

TvígígarTveir gígar sjást hér hlið við hlið.
Úr fjar­lægðHér sést virknin í auka­gígnum vel.

Geldingsbróðir myndast

Í dag urðu við­staddir þess áskynja að kraftur færð­ist í annan gíg, skammt frá aðal­gígnum. Ásýnd gíg­anna er hverful og ljóst að ef gosið heldur áfram mun núver­andi mynd breyt­ast. Ef um dyngju­gos er að ræða mynd­ast að lík­indum víð­feðmt hraun með minna en 8 gráðu halla. Talið er að eina til tvær vikur taki að fylla dal­inn af hrauni.

Seinast gaus á Reykja­nesskaga fyrir um 780 árum og hafa gos komið í löngum hrinum. Eftir að hafa greint efna­sam­setn­ingu hrauns­ins eru jarð­vís­inda­menn að end­ur­meta upp­haf­legt mat sitt á því að um smá­gos sé að ræða. „Þetta gæti orðið langt gos,“ sagði Frey­steinn Sig­munds­son jarð­fræð­ingur í fréttum Rúv í kvöld.

Mikil flug­um­ferð hefur verið um svæðið og bíða flug­vélar í röðum eftir leyfi til að svífa yfir gossvæð­inu.

Göngu­fólk ferGöngu­stígur hefur mynd­ast og er um 7 kíló­metra leið fram og til baka frá Suð­ur­strand­ar­vegi.
Flug­um­ferðinHér sést TF-DÍS svífa yfir gossvæð­inu og sunnar sést þyrla.
Skammt frá höf­uð­borg­inniÁ mynd­inni sést gossvæðið með Keili í bak­sýn. Efst til vinstri sést álverið í Straums­vík. Göngu­leiðin að eld­stöð­inni er til hægri og neðan við gíg­inn er hryggur þar sem björg­un­ar­sveitir lok­uðu fyrir ferðum almenn­ings, enda hafði fólk hætt sér að sprungum sem eru sýni­legar í jörð­inni og rýkur upp úr.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár