Ákvörðun flugfélaga hvort flug raskast

Hefjist eld­gos mun verða óheim­ilt að fljúga yfir ákvæðið svæði í um hálf­tíma til klukku­tíma. Eftir það er það í höndum flug­fé­laga hvernig flugi verður háttað.

Ákvörðun flugfélaga hvort flug raskast
Kefla­vík­ur­flug­völlur Flug­fé­lög munu taka ákvörðun um flug yfir eld­stöðvar, að sögn upp­lýs­inga­full­trúa Isavia. Mynd: Shutterstock

Tíma­bundið verður óheim­ilt að fljúga yfir ákveðið svæði á Reykja­nesi hefj­ist eld­gos á svæð­inu, að sögn upp­lýs­inga­full­trúa Isavia. Líklegt er að það gildi ein­ungis í um hálf­tíma eftir upp­haf goss, en eftir það er það í höndum flug­fé­lag­anna að taka ákvörðun.

Óróapúls hefur mælst suður af Keili í dag að því er Veð­ur­stofan hefur til­kynnt, en eld­gos er ekki hafið. Guðjón Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi Isavia, segir að hefj­ist gosið muni svæði þar sem óheim­ilt verður að fljúga mögu­lega ná yfir Kefla­vík­ur­flug­völl eða Reykja­vík­ur­flug­völl, en það eigi eftir að koma í ljós.

„Það er mynd­aður ákveð­inn hringur í kringum eld­stöð­ina í afmark­aðan tíma,“ segir Guðjón. „Það yrði lík­lega ekki mikið lengra en hálf­tími, eða sá tími sem tekur Veð­ur­stof­una að gefa út ösku­spá. Þegar hún er komin út er það ákvörðun flug­fé­lag­anna hvað þau gera, hvort þau fljúgi yfir svæið eða ekki. Það er atburða­rásin sem fer í gang og svo erum við að tryggja okkar inn­viði og verja okkar rekstur. Það er okkar verk­efni.“

Aðspurður segir Guðjón að fylgst verði með áhrifum goss í fram­hald­inu. „Ef þetta er hraun­gos getur sú staða komið upp að hraunið valdi sam­göngu­trufl­unum ef vegir fara í sundur eða eitt­hvað slíkt,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár