Ríkisstjórnin samþykkir að rannsaka Laugaland

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra hefur ákveðið að kannað verði hvort börn sem vistuð voru í Varp­holti og Lauga­landi hafi orðið fyrir illri með­ferð eða ofbeldi.

Ríkisstjórnin samþykkir að rannsaka Laugaland
Lætur rann­saka Lauga­land Ásmundur hefur til­kynnt kon­unum að rann­sókn fari fram. Mynd: Davíð Þór

Rík­is­stjórnin sam­þykkti í morgun til­lögu Ásmundar Einars Daða­sonar, félags- og barna­mála­ráð­herra, um að rann­saka hvort börn sem vistuð voru á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og síðar Lauga­landi 1997 til 2007 hefðu sætt illri með­ferð, and­legu eða lík­am­legu ofbeldi á meðan þau voru vistuð þar.

Annar fundur Ásmundar með full­trúum kvenna sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu fór fram fyrr í dag og á honum til­kynnti Ásmundur kon­unum að umrædd rann­sókn muni fara fram. Áður hafði Ásmundur fundað með kon­unum síð­ast­lið­inn mánu­dag. Ákvað hann í kjöl­farið að að fela Gæða- og eft­ir­lits­stofnun félags­þjón­ustu og barna­verndar að fara í saumana á starf­sem­inni á umræddu ára­bili. Stofn­unin fer með eft­ir­lit með með­ferð­ar­heim­ilum Barna­vernd­ar­stofu en það hlut­verk var fært til stofn­un­ar­innar árið 2018.

„Mun Gæða- og eft­ir­lits­stofnun fara yfir öll til­tæk gögn máls­ins auk þess að taka við­töl við alla hlut­að­eign­andi aðila máls­ins – þá ein­stak­linga sem vistaðir voru á með­ferð­ar­heim­il­inu, rekstr­ar­að­ila og starfs­menn heim­il­is­ins ásamt ráð­gjafa sem önn­uð­ust mál­efni barn­anna. Nið­ur­staða stofn­un­ar­innar mun móta grund­völl að frek­ari við­brögum stjórn­valda“ segir í til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu.

„Þetta var það sem við vildum“
Brynja Skúla­dóttir

Ellefu nafn­greindar konur höfðu farið fram á því í bréfi til Ásmundar að starf­semi með­ferð­ar­heim­il­is­ins yrði rann­sökuð. Ein þeirra, Brynja Skúla­dóttir, sat fund­inn með Ásmundi fyrr í dag og seg­ist hún mjög ánægð með nið­ur­stöð­una. „Ég er svaka­lega ánægð. Hann [Ásmundur] tal­aði um að það þyrfti að gera þetta vel. Hann sagði að það yrði farið mjög djúpt í hlut­ina og meðal ann­ars tekin við­töl við okkur og líka þá sem komu að okkar málum. Þetta var það sem við vildum. “

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár