Ísland greiðir tvær milljónir fyrir úttekt eftir Samherjamálið

Samningur við Matvæla- og landbúnaðar­stofnun Sameinuðu þjóðanna um úttekt á viðskipta­háttum útgerða í þróunar­löndum var undir­ritaður í nóvember. Samningurinn er hluti af aðgerðar­áætlun ríkis­stjórnarinnar til að auka traust á atvinnu­lífinu í kjölfar Samherja­málsins í Namibíu.

Samið við FAO
Samið við FAO FAO mun sinna fyrsta áfanga í úttekt á við­skipta­háttum útgerða í þró­un­ar­lönd­unum að beiðni Íslands. krist­ján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra segir mesta sér­þekk­ingu til staðar hjá FAO. Mynd: Kristinn Magnússon

Ísland greiðir Matvæla- og landbúnaðar­stofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) tæpar tvær milljónir króna vegna fyrsta áfanga í úttekt stofnunarinnar á viðskipta­háttum útgerða sem stunda veiðar og eiga í viðskiptum með afla­heimildir í þróunar­löndum. Samningur þess efnis var undir­ritaður 18. nóvember síðastliðinn.

Eftir umfjöllun Stundarinnar, Kveiks og Al Jazeera um mútu­greiðslur og óeðlilega viðskipta­hætti útferðar­fyrir­tækisins Samherja í Namibíu í nóvember 2019 samþykkti ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur aðgerða­áætlun í sjö liðum sem ráðast átti í til að auka traust á íslensku atvinnu­lífi. Ein þeirra aðgerða var að Ísland hefði frumkvæði að því að FAO ynni úttekt á umræddum viðskipta­háttum. Hugmyndin var sú að á grund­velli úttektarinnar myndi FAO síðan vinna tillögur til úrbóta „í samvinnu við aðrar alþjóðlegar stofnanir sem vinna að heil­brigðum viðskipta­háttum, gegn spillingu, mútum og peninga­þvætti.“

Gert ráð fyrir að fyrsti áfangi klárist á næstu mánuðum

Samningurinn felur í sér að FAO mun vinna í það minnsta fyrsta áfanga úttektarinnar, sem er kort­lagning á þeim fisk­veiði­samningum sem um er að ræða. Stefnt er að því að áfangarnir í úttektinni verði fjórir og byggi útfærsla hvers áfanga á niður­stöðum næsta áfanga á undan. Samkvæmt svari frá atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytinu við fyrir­spurn Stundarinnar felur það ekki í sér upptalningu á slíkum samningum heldur greining á því hvernig slíkir samningar séu, það er að segja hvað þeir eigi sameiginlegt og hvað sé ólíkt með þeim, með tilliti til mismun­andi svæðis­bundinna aðstæðna, auk greiningar á helstu efnis­atriðum samninganna.

$15.000
Greiðsla Íslands til FAO fyrir fyrsta áfanga úttekt­ar­innar.

„Að mati FAO er ekki fyrir hendi slík greining á fisk­veiði­samningum og því er þessi vinna nauðsynleg forsenda fyrir frekara starf í þessu sambandi og skýrir viðfangs­efnið frekar með því að skoða mismun­andi gerðir og eðli fisk­veiði­samninga á mismun­andi stöðum og svæðum heimsins,“ segir í svari ráðuneytisins.

Ekki eru tímamörk á því í samningi Íslands og FAO hvenær úttektinni skuli lokið en þó er gert ráð fyrir að fyrsta áfanga hennar verði lokið á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Ákvörðun um næstu skref verður svo tekin á grunni niður­staðna fyrsta áfanga.

Mögulega leitað til annarra ríkja og stofnana um samstarf

Ísland greiðir FAO tæpar tvær milljónir króna, 15.000 dollara, vegna þessa fyrsta áfanga úttektarinnar. Kostnaður við síðari áfanga verði metinn í tengslum við útfærslu þeirra þegar að því kemur. Til greina kemur, samkvæmt svari ráðuneytisins, að leita eftir samstarfi við önnur ríki og stofnanir þegar vinna við síðari áfanga úttektarinnar hefst. Fram hefur komið að úttektin verði unnin í tengslum við annað verkefni sem nú þegar er í gangi hjá stofnuninnni.

Árni M. Mathiesen

Hjá FAO var Árni M. Mathiesen, fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra, fjármála­ráðherra og þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, aðstoðar­framkvæmda­stjóri og stýrði deild sem snýr að málefnum sem varða ólöglegar fisk­veiðar, meðal annars. Árni hefur hins vegar látið af störfum hjá stofnuninni og mun það hafa gerst nú í kringum síðustu áramót.

Í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávar­útvegs­ráðherra við fyrir­spurn Hönnu Katrínar Friðriksson, þingkonu Viðreisnar, frá því í nóvember á síðasta ári, kemur fram að talið var eðlilegt að leita til FAO með verkefnið sökum þess að þar væri til staðar best sérfræði­þekking á mála­flokknum. 

Í umfjöllun Stundarinnar og Kveiks í nóvember 2019 kom fram að Samherji hefði greitt hundruð milljóna króna í mútur til stjórn­málamanna og tengdra aðila í Namibíu til að fá í hendur fisk­veiðikvóta þar í landi. Málið er til rann­sóknar í nokkrum löndum, þar á meðal á Íslandi þar sem sex núverandi og fyrr­verandi starfs­menn Samherja hafa réttar­stöðu sakborninga í rannsókn héraðs­saksóknara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár